Rúnar Þórarinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Rúnar Þórarinsson, matreiðslumaður fæddist 21. júlí 1959 í Eyjum.
Foreldrar hans Perla Björnsdóttir, húsfreyja, f. 11. ágúst 1928, og maður hennar Þórarinn Sigurðsson, frá Hallormsstað, skipasmiður, skipaeftirlitsmaður, umdæmisstjóri, f. 24. febrúar 1925, d. 17. desember 1987.

Barn Perlu með Ólafi Guðmundssyni:
1. Elías Björn Angantýsson vélvirki, f. 20. ágúst 1948 í Hlaðbæ. Hann varð kjörbarn Sigríðar Björnsdóttur systur Perlu og Angantýs Elíassonar.
Börn Perlu og Jóns Kristins Björnssonar:
2. Björn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 3. nóvember 1950 í Bólstaðarhlíð. Fyrrum kona Björg Sigríður Óskarsdóttir.
3. Konráð Jónsson vélvirki í Hafnarfirði, f. 5. júní 1952 á Sauðárkróki, fóstraður af föðurforeldrum sínum frá 1-14 ára. Kona Guðríður Jónsdóttir.
4. Kristinn Jónsson sjómaður, f. 8. apríl 1954 í Bólstaðarhlíð. Kona Hjördís Steina Traustadóttir.
Börn Perlu og Þórarins Sigurðssonar:
5. Rúnar Þórarinsson matreiðslumaður, f. 21. júlí 1959, ókvæntur.
6. Guðbjörg Þórarinsdóttir bókasafnsfræðingur, f. 19. ágúst 1962. Maður hennar Árni Stefán Björnsson.

Rúnar er ókvæntur. Hann bjó við Ásaveg 2F 1986.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.