Kristinn Jónsson (Bólstaðarhlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristinn Jónsson, frá Bólstaðarhlíð, sjómaður fæddist þar 8. apríl 1954.
Foreldrar hans Perla Björnsdóttir, frá Bólstaðarhlíð, húsfreyja, f. 11. ágúst 1928, og fyrri maður hennar Jón Kristinn Björnsson, bóndi í Bæ á Höfðaströnd og á Hellulandi í Hegranesi í Skagafirði, f. 22. desember 1928, d. 12. desember 2000.

Barn Perlu með Ólafi Guðmundssyni:
1. Elías Björn Angantýsson vélvirki, f. 20. ágúst 1948 í Hlaðbæ. Hann varð kjörbarn Sigríðar Björnsdóttur systur Perlu og Angantýs Elíassonar.
Börn Perlu og Jóns Kristins Björnssonar:
2. Björn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 3. nóvember 1950 í Bólstaðarhlíð. Fyrrum kona Björg Sigríður Óskarsdóttir.
3. Konráð Jónsson vélvirki í Hafnarfirði, f. 5. júní 1952 á Sauðárkróki, fóstraður af föðurforeldrum sínum frá 1-14 ára. Kona Guðríður Jónsdóttir.
4. Kristinn Jónsson sjómaður, f. 8. apríl 1954 í Bólstaðarhlíð. Kona Hjördís Steina Traustadóttir.
Börn Perlu og Þórarins Sigurðssonar:
5. Rúnar Þórarinsson matreiðslumaður, f. 21. júlí 1959, ókvæntur.
6. Guðbjörg Þórarinsdóttir bókasafnsfræðingur, f. 19. ágúst 1962. Maður hennar Árni Stefán Björnsson.

Þau Hjördís Steina giftu sig 1977, eignuðust fjögur börn, en misstu fyrsta barn sitt nýfætt. Þau bjuggu við Brimhólabraut 16.

I. Kona Kristins, (12. júní 1977), er Hjördís Steina Traustadóttir, f. 12. júní 1958.
Börn þeirra:
1. Drengur Kristinsson, f. 8. maí 1978 í Eyjum, d. 8. maí 1978.
2. Perla Kristinsdóttir, f. 7. nóvember 1980 í Eyjum.
3. Anna Margrét Kristinsdóttir, f. 24. ágúst 1987 í Eyjum.
4. Halla Kristín Kristinsdóttir, f. 14. apríl 1997 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.