Rósa Magnúsdóttir (Hólagötu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Rósa Magnúsdóttir.

[Rósa Magnúsdóttir frá Efri-Ey í Meðallandi, V.-Skaft., húsfreyja, verkakona fæddist þar 13. apríl 1932 og lést 15. júní 2018 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Magnús Sigurðsson, f. 7. maí 1901, d. 18. desember 1983, og kona hans Jónína Margrét Egilsdóttir frá Kerlingardal í Mýrdal, húsfreyja, f þar 26. maí 1903, d. 26. júlí 2000.

Rósa var með foreldrum sínum til 1955.
Hún vann alla tíð verkakvennavinnu, í fiskiðnaði, við netaafskurð og ræstingar.
Eftir sjötugt hóf hún listmálun.
Þau Bárður giftu sig 1956, fluttu til Eyja 1957, eignuðust þrjú börn, bjuggu við Hólagötu 35. Þau fluttu til Þorlákshafnar 1967. Þau fluttu til Reykjavíkur árið 1999, bjuggu við Dalbraut 16.
Rósa lést 2018 og Bárður 2020.

I. Maður Rósu, (10. janúar 1956), var Bárður Brynjólfsson frá Þykkvabæjarklaustri, bifreiðastjóri, f. 10. janúar 1928, d. 14. janúar 2020.
Börn þeirra:
1. Margrét Bárðardóttir grunnskólakennari, f. 30. apríl 1957, d. 17. ágúst 2005. Maður hennar Bjarni Áskelsson.
2. Guðrún Brynja Bárðardóttir, f. 31. október 1960. Maður hennar Rúnar Ásbergsson.
3. Ágústa Bárðardóttir, f. 13. apríl 1967. Maður hennar Einar Jónsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 25. júní 2018. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


[[Flokkur: Verkakonur]