Bjarni Áskelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni Áskelsson, fiskeldisfræðingur fæddist 25. október 1954.
Foreldrar hans voru Áskell Torfi Bjarnason sjómaður, f. 14. september 1926, d. 24. febrúar 2017, og kona hans Anna Guðný Jóhannsdóttir frá Borgarfirði eystra, f. 31. júlí 1928, d. 23. maí 2018.

Þau Margrét giftu sig 1980, eignuðust tvö börn.
Margrét lést 2005.

I. Kona Bjarna, (5. júlí 1980), var Margrét Bárðardóttir, húsfreyja, leikskóla- og grunnskólakennari, f. 30. apríl 1957, d. 17. ágúst 2005.
Börn þeirra:
1. Ágúst Elvar Bjarnason, f. 17. janúar 1979. Sambúðarkona hans Hildur María Valgarðsdóttir.
2. Áskell Fannar Bjarnason, f. 5. desember 1986. Kona hans Þórleif Guðjónsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.