Ráðhildur Árnadóttir (Bræðraborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ráðhildur Árnadóttir frá Bræðraborg, húsfreyja fæddist þar 24. júní 1917 og lést 14. janúar 1997 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Árni Sigurjón Finnbogason skipstjóri, f. 5. desember 1893 í Norðurgarði, d. 22. júní 1992, og kona hans Guðbjörg Aðalheiður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 15. febrúar 1896 á Fögruvöllum, d. 30. janúar 1958,

Börn Guðbjargar Aðalheiðar og Árna:
1. Rósa húsfreyja, f. 25. júní 1916, d. 12. mars 1983, fyrr gift Þórarni Bernótussyni, síðar Birni Arnórssyni.
2. Ráðhildur húsfreyja, f. 24. júní 1917, d. 14. janúar 1997, gift Gísla Þorsteinssyni.
3. Ágústa Kristín Árnadóttir, f. 15. janúar 1919, d. 24. júní 1919.
4. Sigurbjörn verkamaður, sjómaður, bifreiðastjóri, f. 6. mars 1920, d. 31. desember 1998, fyrr kvæntur Maríu Björgvinsdóttur, síðar Ester S. Snæbjörnsdóttur.
5. Ágústa Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1921, gift Emil Jóhanni Magnússyni kaupmanni í Grundarfirði.
6. Aðalheiður Árný Árnadóttir húsfreyja, f. 5. desember 1925, d. 20. september 1989, fyrrum gift Pálma Péturssyni kennara.
7. Áslaug Árnadóttir húsfreyja, fædd 20. janúar 1928, d. 18. júlí 2007, gift Pétri Sveinssyni bifreiðastjóra.
8. Finnbogi Árnason rafvirkjameistari, fæddur 5. maí 1930, d. 1. nóvember 2019, kvæntur Guðbjörgu Þóru Steinsdóttur.
9. Borgþór Árnason vélstjóri, fæddur 27. september 1932, d. 14. febrúar 2008, kvæntur (skildu) Guðrúnu Andersen.

Ráðhildur var með foreldrum sínum í æsku.
Hún lauk námi í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað, vann þar í tvö ár, var vefnaðarkennari þar síðara árið.
Þau Gísli giftu sig 1940, eignuðust kjörbarn. Þau bjuggu í fyrstu í Stóra-Hvammi, síðar á Heimagötu 30 og Brimhólabraut 22, í húsi, sem þau byggðu. Þau skildu 1958.
Ráðhildur fluttist til Reykjavíkur 1965 og bjó lengst í Fellsmúla.
Hún átti við viðvarandi sjúkleika að stríða langa ævi og þurfti að dvelja á sjúkrahúsum.
Ráðhildur lést 1997.

I. Maður Ráðhildar, (2. nóvember 1940, skildu 1958), var Gísli Þorsteinsson frá Laufási, frystihússeigandi, framkvæmdastjóri, listmálari, f. þar 23. júní 1906, d. 10. júlí 1987.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Gísli Már Gíslason rafmagnsverkfræðingur, bókaútgefandi, f. 8. janúar 1947 á Þórshöfn á Langanesi. Kona hans Sigrún Valbergsdóttir. Kynforeldrar Gísla Más voru Ágústa Kristín Árnadóttir húsfreyja, systir Ráðhildar, f. 6. ágúst 1921, d. 27. október 2014 og maður hennar Emil Jóhann Magnússon verslunarmaður, kaupmaður í Grundarfirði, f. 25. júlí 1921, d. 8. febrúar 2001.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.