Nína Kristín Guðnadóttir (Fögruvöllum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Nína Kristín Guðnadóttir frá Fögruvöllum, húsfreyja fæddist þar 21. apríl 1944.
Foreldrar hennar voru Guðni Kristófersson frá Stóra-Dal u. Eyjafjöllum, verkamaður, smiður, f. 4. nóvember 1903, d. 5. maí 1996, og kona hans Svava Björnsdóttir frá Haga í Aðaldal, S.-Þing., húsfreyja, f. 29. nóvember 1904, d. 14. febrúar 1973.

Börn Svövu og Guðna:
1. Auðbjörg Guðnadóttir, f. 1. mars 1931, d. 17. maí 1933.
2. Börgvin Hilmar Guðnason, f. 11. nóvember 1935 á Fögruvöllum, d. 27. nóvember 1998.
3. Nína Kristín Guðnadóttir, f. 21. apríl 1944 á Fögruvöllum.
4. Kristinn Vignir Guðnason, f. 30. júlí 1946 á Fögruvöllum.

Nína var með foreldrum símum í æsku, á Fögruvöllum.
Hún vann við póstburð á Pósthúsinu.
Þau Ólafur giftu sig 1965, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Sigtúni, en skildu 1973.
Þau Hreinn giftu sig, bjuggu á Þverá í Akrahreppi, en skildu.

I. Maður Nínu, (31. desember 1965), var Ólafur Vilhelm Vigfússon verkamaður, f. 2. apríl 1944, d. 16. apríl 1998.
Börn þeirra:
1. Guðni Ólafsson verkstjóri á Sauðárkróki, f. 16. mars 1965 á Fögruvöllum. Kona hans Edda María Valgarðsdóttir
2. Svava Vilborg Ólafsdóttir fiskverkakona, starfsmaður á dvalarheimili í Keflavík, f. 10. ágúst 1968. Fyrrum maður hennar Gunnar Hafsteinn Hermanníusson. Sambúðarmaður hennar Eiríkur Waltersson.

II. Maður Nínu var Hreinn Jónsson bóndi á Þverá í Akrahreppi, síðar bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 12. janúar 1943, d. 8. desember 2019. Þau skildu. Foreldrar hans voru Jón Pálmason frá Svaðastöðum í Skagafirði, bóndi í Axlarhaga í Blönduhlíð, f. 7. október 1900, d. 12. ágúst 1955, og kona hans Arnfríður Jónasdóttir frá Grundarkoti í Blönduhlíð, húsfreyja, f. 12. nóvember 1905, d. 9. febrúar 2002.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.