Margrét Svavarsdóttir (Byggðarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Guðbjörg Svavars Svavarsdóttir húsfreyja í Danmörku fæddist 1. nóvember 1954.
Foreldrar hennar voru Guðjón Svavar Antoníusson frá Byggðarholti, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 27. desember 1908, d. 19. maí 1979, og kona hans Kristín Halldórsdóttir frá Tréstöðum í Hörgársveit í Eyjafirði, húsfreyja, f. 20. nóvember 1913, d. 22. febrúar 1991.

Börn Kristínar og Svavars:
1. Ólöf Svavarsdóttir húsfreyja, starfsstúlka í Svíþjóð, f. 10. nóvember 1938 í Byggðarholti.
2. Kristjana Svavars Svavarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. mars 1941 í Byggðarholti. Maður hennar var Hjálmar Guðnason.
3. Halldór Svavars Svavarsson seglasaumari, kaupmaður í Hafnarfirði, f. 9. júlí 1942 í Byggðarholti. Kona hans Vigdís Ásgeirsdóttir.
4. Bragi Svavars Svavarsson, f. 27. september 1944 í Byggðarholti, d. 4. febrúar 1966 af slysförum.
5. Valur Svavars Svavarsson flísalagningamaður, kaupmaður í Hafnarfirði, f. 27. september 1944 í Byggðarholti. Kona hans Halldóra Valdimarsdóttir.
6. Antoníus Þorvaldur Svavars Svavarsson flugvélstjóri í Þýskalandi, býr nú í Reykjavík, f. 18. mars 1949 í Byggðarholti. Kona hans Hrafnhildur Sigurðardóttir.
7. Margrét Guðbjög Svavars Svavarsdóttir húsfreyja, fóstra í Danmörku, f. 1. nóvember 1954. Maður hennar Jens Parbo.

Þau Jens giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Maður Margrétar Guðbjargar er Jens Kristian Parbo trésmiður.
Börn þeirra:
1. Thor Parbo, f. 11. janúar 1980.
2. Ásbjörn Parbo, f. 23. október 1985.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.