María Jónsdóttir (Arngeirsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
María Jónsdóttir.

María Jónsdóttir frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, húsfreyja fæddist 20. febrúar 1867 og lést 10. ágúst 1958 í Steinmóðarbæ u. V.-Eyjafjöllum.
Foreldrar hennar voru Jón Erlendsson frá Heylæk í Fljótshlíð, bóndi, f. 19. júlí 1834, d. 18. mars 1898, og kona hans Margrét Árnadóttir frá Arngeirsstöðum, húsfreyja, f. 6. júní 1837, d. 28. júlí 1921.

Systkini Maríu í Eyjum voru:
1. Aðalheiður Jónsdóttir húsfreyja á Landagötu 18, (Hólnum), f. 12. október 1873, d. 24. ágúst 1933.
2. Kristján Jónsson á Heiðarbrún, f. 13. mars 1882, d. 19. ágúst 1957.

María var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Einar giftu sig 1896, eignuðust átta börn, en eitt þeirra fæddist andvana. Þau bjuggu í Fagurhól í A.-Landeyjum 1897-1898, á Arngeirsstöðum í Fljótshlíð 1899-1911.
Þau fluttu til Eyja 1911, voru húsmenn á Kirkjubóli, síðar leigjendur á Hoffelli. Þau fluttu úr Eyjum að Móakoti á Álftanesi 1917.
Einar lést 1939 í Hafnarfirði og María 1958 í Steinmóðarbæ u. V.-Eyjafjöllum.

I. Maður Maríu, (28. maí 1896), var Einar Sigurðsson frá Fagurhóli í A.-Landeyjum, f. 4. október 1873, d. 27. desember 1939.
Börn þeirra:
1. Jónína Margrét Einarsdóttir, f. 25. september 1897, d. 17. júní 1991.
2. Sigurður Einarsson prestur, f. 29. október 1898, d. 23. febrúar 1967.
3. Sigríður Helga Einarsdóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1900, d. 2. nóvember 1985.
4. Hermann Einarsson, f. 27. janúar 1903, d. 6. mars 1941.
5. Guðrún Einarsdóttir, f. 21. apríl 1904, d. 23. desember 1984.
6. Andvana dóttir, f. 30. júní 1907.
7. Marta Aðalheiður Einarsdóttir, f. 13. janúar 1909, d. 5. nóvember 2004.
8. Guðbjörg Lilja Einarsdóttir, f. 27. apríl 1912 á Kirkjubóli, d. 20. júlí 1997.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.