María Jóhannsdóttir (Höfðahúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

María Karólína Jóhannsdóttir frá Höfðahúsi við Vesturveg 8, húsfreyja fæddist þar 16. febrúar 1912 og lést 5. júlí 1979.
Foreldrar hennar voru Jóhann Björnsson sjómaður, skipstjóri, f. 12. nóvember 1877 í Mýnesi í Fljótsdal, S.-Múl., d. 19. apríl 1948, og kona hans Ingibjörg Þórarinsdóttir frá Katrínarkoti á Álftanesi, húsfreyja, f. 18. febrúar 1890, d. 18. febrúar 1964.

Börn Ingibjargar og Jóhanns voru:
1. María Karólína Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 16. febrúar 1912, d. 5. júlí 1979.
2. Jóna Ingibjörg Jóhannsdóttir, f. 16. nóvember 1913, d. 2. desember 1913.
3. Karl Þórarinn Jóhannsson sjómaður, f. 23. desember 1917, d. 8. maí 1969.
4. Þórir Jóhannsson verkamaður, f. 11. maí 1922, d. 24. nóvember 1968.
5. Sigurður Rúdólf Jóhannsson verkamaður, vaktmaður á Landspítala, f. 14. október 1930 í Höfðahúsi, d. 2. janúar 1997.
Fósturdóttir hjónanna:
6. Ragnhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, f. 16. júlí 1918, d. 4. júlí 2009.

María var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Jakob giftu sig 1933, eignuðust þrjú börn, en misstu frumburð sinn nokkurra vikna gamlan. Þau bjuggu í Höfðahúsi, síðar á Heiðarvegi 24.
Jakob lést 1975 og María 1979.

I. Maður Maríu, (16. september 1933), var Jakob Elías Guðmundsson frá Færeyjum, sjómaður, verkamaður við lifrabræðslu, f. 19. nóvember 1901, d. 28. nóvember 1975.
Börn þeirra:
1. Jóhann Jakobsson, f. 25. mars 1930 í Höfðahúsi, d. 23. apríl 1930.
2. Guðmundur Trausti Jakobsson húsasmíðameistari, f. 5. febrúar 1933 í Höfðahúsi, d. 3. júní 2011. Kona hans Jessý Friðriksdóttir.
3. Jóhann Ævar Jakobsson málarameistari, lögregluþjónn, rithöfundur, f. 22. ágúst 1937 í Höfðahúsi, d. 28. júlí 2014. Kona hans Sólveig Pálsdóttir frá Akureyri.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.