Lárus Már Andrésson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Lárus Már Andrésson lögreglumaður, varðstjóri fæddist 11. maí 1986.
Foreldrar hans Andrés Þórarinsson stýrimaður, skipstjóri, f. 14. september 1945, d. 12. nóvember 1993, og kona hans Margrét Ingibjörg Lárusdóttir húsfreyja, f. 2. maí 1949.

Börn Margrétar og Andrésar:
1. Hrafnhildur Andrésdóttir á Hellu, starfsmaður leikskóla, f. 14. desember 1968. Maður hennar Þröstur Sigurðsson.
2. Þórunn Andrésdóttir á Árskógsströnd, Ey., f. 2. ágúst 1970. Barnsfeður hennar Aðólf Hauksson og Kristmundur Carter. Maður hennar Rúnar Þór Ingvarsson.
3. Sonja Andrésdóttir í Eyjum, f. 10. ágúst 1972. Fyrrum maður hennar Guðjón Jónsson. Maður hennar Agnar Magnússon.
4. Sigríður Lára Andrésdóttir, snyrtifræðingur í Eyjum, f. 29. október 1977. Maður hennar Sigurður Smári Benónýsson.
5. Lárus Már Andrésson lögreglumaður í Hafnarfirði, f. 11. maí 1986. Sambúðarkona hans Svanbjörg Vilbergsdóttir.

Þau Svanbjörg hófu sambúð, hafa ekki eignast börn saman, en Svanbjörg á tvö börn frá fyrra sambandi, sem Lárus Már er fósturfaðir að. Þau búa á Selfossi.

I. Sambúðarkona Lárusar Más er Svanbjörg Vilbergsdóttir, húsfreyja, f. 10. júlí 1984. Foreldrar hennar Vilberg Einarsson, f. 11. mars 1957, og Þórhildur Freysdóttir, f. 9. desember 1954.
Börn hennar og fósturbörn Lárusar Más:
1. Jessica Ósk Lavender, f. 14. nóvember 2006.
2. Tristan Logi Lavender, f. 15. nóvember 2007.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.