Kristín Sigurjónsdóttir (Steinholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Valgerður Kristín Sigurjónsdóttir.

Valgerður Kristín Sigurjónsdóttir frá Búðarhóli í A.-Landeyjum, húsfreyja fæddist 31. desember 1934 og lést 23. júní 2022.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Einarsson bóndi, f. 7. apríl 1894, d. 19. október 1987, og kona hans Margrét Fríða Jósepsdóttir frá Sveðjustöðum í Miðfirði, V.-Hún., húsfreyja, f. 23. nóvember 1904, d. 10. október 1978.

Börn Margrétar og Sigurjóns:
1. Einar Birgir Sigurjónsson lögregluþjónn, f. 5. maí 1933. Kona hans Sigríður Sigurðardóttir.
2. Sonur, f. 1. mars 1934, d. 4. mars 1934.
3. Friðrik Sigurjónsson, f. 1. mars 1934, d. 5. mars 1934.
4. Valgerður Kristín Sigurjónsdóttir húsfreyja á Bakka í A.-Landeyjum, f. 31. desember 1934, d. 23. júní 2022.
5. Eiríkur Ingvi Sigurjónsson bifreiðastjóri í Keflavík, f. 17. ágúst 1937, d. 2. október 1978. Kona hans Sigrún Karlsdóttir.
6. Heiðrún Gréta Sigurjónsdóttir húsfreyja á Bakkafirði, f. 23. desember 1941. Fyrri maður Sigurður Einarsson. Sambýlismaður Guðmundur Vagnsson.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1952, bjó með þeim á Sólheimum við Njarðarstíg15.
Þau Jón giftu sig 1961, eignuðust sex börn. Þau bjuggu í Steinholti við Kirkjuveg 9A, fluttu að Bakka í A.-Landeyjum 1962, endurreistu þar öll húsakynni og juku ræktun. Þau bjuggu þar til ársins 2000, er börn þeirra tóku við búi.
Kristín var heiðursfélagi í kvenfélaginu Freyju.
Jón lést 2016 og Kristín 2022.

I. Maður Valgerðar Kristínar, (16. júlí 1961), var Jón Einarsson frá Tjörnum u. V.-Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður, síðan bóndi á Bakka í A.-Landeyjum, f. þar 1. mars 1930, d. 10. apríl 2016.
Börn þeirra:
1. Sigmar Jónsson smiður á Hvolsvelli, f. 15. apríl 1957. Kona hans Hólmfríður Kristín Helgadóttir.
2. Einar Jónsson flugvallarstarfsmaður, f. 1. febrúar 1959. Kona hans Unnur M. Sævarsdóttir.
3. Harpa Jónsdóttir verkakona, f. 21. apríl 1962. Barnsfaðir hennar Axel Þór Pálsson.
4. Grettir Jónsson verkamaður, f. 18. nóvember 1967.
5. Jón Valur Jónsson verkamaður, f. 2. júlí 1973. Kona hans Sigríður Sigmarsdóttir.
6. Eiríkur Ingvi Jónsson, f. 20. nóvember 1980. Kona hans Berglind Ó. Sigvarðsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Morgunblaðið 4. júlí 2022. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.