Kristín Magnúsdóttir (mormóni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Magnúsdóttir frá Bakkakoti á Rangárvöllum, vinnukona fæddist 4. september 1819 í Bakkakoti á Rangárvöllum og lést 17. október 1887 í Murray í Salt Lake City í Utah .
Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson bóndi í Bakkakoti, Rimahúsum u. Eyjafjöllum, Núpi þar og Sitjanda, f. 1780 í Gerðum í V-Landeyjum, d. 8. nóvember 1848 á Raufarfelli u. Eyjafjöllum, og fyrsta kona hans Elín Þorleifsdóttir húsfreyja frá Oddsparti í Þykkvabæ í Djúpárhreppi, f. 1781, d. 29. maí 1824.

Bróðir Kristínar var Pétur Magnússon bóndi í Norðurgarði, f. 29. ágúst 1820, d. 1. október 1850. Hann var fyrri maður Vilborgar Guðmundsdóttur, síðar húsfreyju í Dölum, kona Guðna Guðnasonar.

Kristín var 16 ára með foreldrum sínum í Rimahúsum u. Eyjafjöllum 1835, vinnukona á Eyvindarhólum þar 1840, í Steinum þar 1845, í Háagarði 1850. Hún fluttist frá ,,Austurlandi‘‘ að Oddsstöðum 1852, var þar vinnukona 1853, hjá Magnúsi Bjarnasyni og Þuríði Magnúsdóttur í Helgahjalli 1854-1856.
Hún fór frá Eyjum í 20 manna hópi til Utah samkv. skráningu prestsins 1857. Þar voru m.a.
1. Magnús og
2. Þuríður frá Helgahjalli með
3. Dóttur þeirra Kristínar eins árs,
4. Loftur Jónsson og fjölskylda hans,
5. Guðný Erasmusdóttir ekkja, síðar viðbótarkona Magnúsar í Helgahjalli,
6. Vigdís Björnsdóttir,
7. Kristín Magnúsdóttir,
8. Karítas Jónsdóttir,
9. Anna Guðlaugsdóttir.
Auk þess er talin meðal Ameríkufara Ingunn Larsdóttir, en hún mun hafa haldið til Danmerkur, er til Englands kom.
Kristínar Magnúsdóttur er getið í bréfi Lofts Jónssonar 1862.
Þau William giftu sig 1862, eignuðust eitt barn.

I. Maður Kristínar, (1. maí 1862), var William Stepehns í Salt Lake Ciry, f. 9. júlí 1805 í Catletown á Englandi, d. 27. maí í Little Cottonwood í Salt Lake City. Foreldrar hans voru Philip Stephens, f. 6. janúar 1774 í German Isle of Man, d. 12. apríl 1857 í Malew Landward í Rushen á Isle of Man, og kona hans Elizabeth Young, f. 1775 í Catletown í Isle of Man, d. 26. febrúar 1831 í Glen Maye, Patrick, Glenfaba, Isle of Man.
Barn þeirra:
1. Cyrus James Stephens í Utah, f. 10. janúar 1866 í Morgan í Utah, d. 16. maí 1911 í Utah. Kona hans Eliza Ann Herbert Cook.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • The Icelanders in Utah. La Nora Allred.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.