Kristín Jónsdóttir (Vattarnesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Vattarnesi við Reyðarfjörð fæddist 14. júlí 1913 á Baldursgötu 1 í Reykjavík og lést 9. apríl 1994.
Foreldrar hennar voru Jón Þorvarðarson frá Núpi á Berufjarðarströnd, S-Múl., bóndi á Krossi þar, f. 2. ágúst 1856 á Núpi þar, og kona hans Sólveig Jakobína Ólafsdóttir frá Vík í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. 13. október 1871, d. 28. mars 1957.

Kristín ólst upp á Eyjólfsstöðum í Fossárdal við Berufjörð, var vinnukona þar 1930, í Tungu í Fáskrúðsfirði, er hún kynntist Sigbirni, bjó með honum í Eyjum skamma stund, eignaðist með honum Margréti 1936.
Þau fluttu að Hafranesi við Reyðarfjörð um 1937 og að Marbakka á Vattarnesi 1940.
Þau Sigbjörn giftu sig 1941, eignuðust fjögur börn.
Sigbjörn lést af slysaskoti 1947.
Kristín bjó ekkja í níu ár, bjó með Þorsteini frá 1956. Þau fluttu á Seltjarnarnes 1962, giftu sig 1965. Þau bjuggu lengst á Stóra-Ási, en síðar á Skólabraut 3.
Kristín lést 1994 og Þorsteinn 2005.

I. Maður Kristínar, (30. nóvember 1941), var Sigbjörn Guðjónsson bóndi, póstur, f. 14. júní 1918, d. 22. október 1947.
Börn þeirra:
1. Margrét Sigbjörnsdóttir, f. 26. mars 1936, d. 25. desember 2017. Barnsfaðir hennar Sigurdór Sigurdórsson. Maður hennar Guðmundur Óli Ólafsson.
2. Bjarnveig Sigbjörnsdóttir, f. 21. apríl 1942, d. 19. mars 1990. Maður hennar Einar Brynjólfsson.
3. Magnús Jón Sigbjörnsson, f. 27. maí 1944. Kona hans Þóra Gréta Pálsdóttir.
4. Guðleif Sigbjörnsdóttir, f. 2. janúar 1947. Fyrri maður hennar Steinþór Þórormsson. Maður hennar Jón Már Smith.

II. Síðari maður Kristínar, (1965), var Þorsteinn Stefánsson frá Skálavík við Fáskrúðsfjörð, alinn upp á Vattarnesi og í Eyjum, bóndi, vélstjóri, f. 31. maí 1919, d. 19. maí 2005.
Þau voru barnlaus saman, en Kristín kom með þrjú börn frá fyrra hjónabandi sínu í hjúskapinn.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.