Kristín Eggertsdóttir (Franska spítalanum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Kristín Eggertsdóttir.

Kristín Eggertsdóttir úr Reykjavík, húsfreyja fæddist 4. ágúst 1952 og lést 10. október 2007.
Foreldrar hennar voru Eggert Sveinsson járnsmiður, sjómaður, matsveinn, f. 24. desember 1906 á Hálsi í Grundarfirði, d. 19. febrúar 1994, og síðari kona hans Marselía Kristinsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1929 á Strandgötu 13 á Akureyri, d. 11. júlí 2008.

Kristín var með foreldrum sínum í fyrstu, en þau skildu.
Hún nam við Húsmæðraskólann á Laugum í Aðaldal, S.-Þing. og fór síðar til Eyja. Þar vann hún í Hressingarskálanum í Viðey, á bæjarskrifstofunum og í Sparisjóðnum.
Þau Jósúa Óskar giftu sig 1971, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu í Franska spítalanum, en síðar á Búhamri 21.
Kristín lést 2007.

I. Maður Kristínar, (23. september 1971), er Jósúa Steinar Óskarsson húsgagna- og húsasmíðameistari, f. 4. október 1952.
Börn þeirra:
1. Steinunn Ásta Jósúadóttir leikskólakennari, f. 23. nóvember 1971. Maður hennar Ásmundur Kristberg Örnólfsson.
2. Óskar Jósúason grunnskólakennari, aðstoðarskólastjóri, f. 10. maí 1979. Kona hans Guðbjörg Guðmannsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Jósúa Steinar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Þjóðskrá 1986.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.