Karl Gunnar Marteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Karl Gunnar Marteinsson.

Karl Gunnar Marteinsson sjómaður, vélvirki, kennari fæddist 21. desember 1936 í Reykjavík og lést 15. desember 2014 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hans voru Marteinn Pétursson bifreiðastjóri, verkamaður í Reykjavík, f. 30. september 1904, d. 10. nóvember 1971, og kona hans Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 22. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991. Fósturfaðir Karls Gunnars var Sigurður Gissurarason sjómaður, f. 21. nóvember 1918, d. 4. apríl 1998.

Börn Önnu og Marteins:
1. Pétur Lúðvík Marteinsson flugmaður, síðast í Hafnarfirði, f. 24. nóvember 1932 í Reykjavík, d. 19. maí 2018. Kona hans Áslaug Árnadóttir.
2. Karl Gunnar Marteinsson vélvirki, kennari í Eyjum, f. 21. desember 1936, d. 15. desember 2014. Kona hans Svandís Unnur Sigurðardóttir.

Börn Önnu og Sigurðar Gissurarsonar:
3. Þórarinn Sigurður Sigurðsson rafvirki, f. 14. desember 1945 á Lágafelli. Kona hans Guðrún Rannveig Jóhannsdóttir.
4. Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, f. 10. apríl 1947 á Lágafelli. Maður hennar Sigurður Sigurðsson.

Karl var með foreldrum sínum, en þau skildu 1940.
Hann flutti með móður sinni og Pétri bróður sínum til Eyja. Móðir þeirra giftist Sigurði 1944.
Karl Gunnar nam vélvirkjun í Magna.
Hann var póstsendill 14 ára, síðan sjómaður 15 ára á Baldri VE 24 í 8 ár. Í Magna vann hann í átján ár. Hann varð kennari við Vélskólann í Eyjum 1980 og vann við kennslu til 69 ára aldurs, en hætti þá vegna veikinda.
Þau Svandís Unnur giftu sig 1959, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu í Birkihlíð 26, á Strembugötu 25 við Gos og síðan.
Karl Gunnar lést 2014.

I. Kona Karls Gunnars, (31. maí 1959), er Svandís Unnur Sigurðardóttir frá Miðkoti í Djúpárhreppi, húsfreyja, f. 8. desember 1938.
Börn þeirra:
1. Anna Sigrid Karlsdóttir, f. 3. ágúst 1959. Maður hennar Guðjón Þorkell Pálsson.
2. Sigurður Friðrik Karlsson, f. 18. október 1962. Kona hans Sólrún Helgadóttir.
3. Rúnar Þór Karlsson, f. 24. mars 1976. Kona hans Karen Haraldsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.