Jensína María Matthíasdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jensína María Matthíasdóttir, fædd Nielsen, frá Færeyjum, húsfreyja á Miðhúsum fæddist 6. febrúar 1892 í Kvívík á Straumey í Færeyjum og lést 28. maí 1947.

Jensína fluti til Eyja 1915.
Þau Kristinn giftu sig 1919, eignuðust níu börn, en misstu fjögur þeirra á ungum aldri. Þau bjuggu í fyrstu á Bergi við Bárustig 4, síðan á Miðhúsum norðan Bakkastígs.
Jensína lést 1947 og Kristinn 1981.

I. Maður Jensínu, (7. október 1919), var Kristinn Ástgeirsson sjómaður, trillukarl, vigtar- og móttökumaður hjá Lifrarsamlaginu, myndlistarmaður, f. 6. ágúst 1894, d. 31. júlí 1981.
Börn þeirra:
1. Jakob Matthías Kristinsson, f. 1. október 1916, d. 23. júní 1931.
2. Guðjón Kristinn Kristinsson vélstjóri, skipstjóri, f. 29. nóvember 1917, d. 28. mars 1975.
3. Valdimar Kristinsson verkamaður, síðast í Innri-Akraneshreppi, f. 8. nóvember 1919, d. 30. maí 1988.
4. Drengur, f. í júní 1921, d. 6. júlí 1921.
5. Jens Kristinsson sjómaður, beitningamaður, verkamaður, f. 13. september 1922, d. 12. júní 2015.
6. Ásgeir Kristinsson, f. 16. júní 1924, d. 9. nóvember 1929.
7. Finnbogi Kristinsson, f. 13. febrúar 1926, d. 11. desember 1926.
8. Tryggvi Kristinsson, f. 21. mars 1928, d. 25. desember 1969.
9. Kristinn Kristinsson sjómaður, f. 11. mars 1933, d. 1. janúar 1997.
Sonur Kristins Ástgeirssonar og Oktavíu Þórunnar Jóhannsdóttur:
10. Jóhann Kristinsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 9. janúar 1913, d. 13. október 1985.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.