Jón Magnússon (formaður)
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Magnússon“
Jón Magnússon, Vallartúni, fæddist 10. október 1889 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og lést 3. desember 1964 á Húsavík. Foreldrar hans voru Magnús Eyjólfsson og Guðlaug Guðmundsdóttir. Einkadóttir Jóns var Sigrún, búsett á Húsavík.
Jón tók þátt í öllum þeim störfum sem að fylgdu búskapnum á Kirkjubæ og síðar Gísla á Búastöðum. Jón var afburðagóður fjallamaður og kjarkmikill. Hann fór fyrir Kirkjubæjarmönnum í öllum úteyja- og fjallaferðum í áratugi.
Hann byrjaði að róa á árabát með Ísleifi á Kirkjubæ. Jón hóf formennsku árið 1910 á Ísak og var formaður til ársins 1940 á hinum ýmsu bátum. Hann átti fjóða hlut í Braga og stýrði honum í 11 vertíðir.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Jón Magnússon (formaður)
Heimildir
- Eyjólfur Gíslason. Minning mætra manna. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.