Jón Kristinn Snorrason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jón Kristinn Snorrason, málari, öryggis- og gæðastjóri hjá Alefli í Mosfellsbæ, fæddist 13. mars 1970.
Foreldrar hans Snorri Jónsson, rafvirkjameistari, f. 14. nóvember 1943, d. 4. febrúar 2023, og kona hans Þyrí Ólafsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, f. 6. nóvember 1949.

Börn Þyríar og Snorra:
1. Ólafur Þór Snorrason iðnrekstrarfræðingur, f. 23. ágúst 1968. Kona hans Þórunn Júlía Jörgensdóttir.
2. Jón Kristinn Snorrason málari, öryggis- og gæðastjóri hjá Alefli í Mosfellsbæ, f. 13. mars 1970. Kona hans Lilja Harðardóttir.
3. Hafdís Snorradóttir símavörður, skrifstofumaður, verslunarstjóri, framkvæmdastjóri, f. 21. desember 1973. Maður hennar Friðrik Þór Steindórsson.
4. Hafþór Snorrason framkvæmdastjóri, f. 21. desember 1973. Kona hans Dagrún Sigurgeirsdóttir .
5. Bryndís Snorradóttir, aðstoðarskólastjóri, f. 18. maí 1980. Maður hennar Davíð Friðgeirsson.

Þau Lilja giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa á Álftanesi.

I. Kona Jóns Kristins er Lilja Harðardóttir, húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 29. apríl 1971. Foreldrar hennar Hörður Elíasson, f. 31. ágúst 1941, og Elínbjörg Þorbjarnardóttir, f. 10. júlí 1941.
Börn þeirra:
1. Gauti Jónsson, f. 20. desember 1998.
2. Kristín Jónsdóttir, f. 27. ágúst 2004.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.