Þyrí Ólafsdóttir (sjúkraliði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Þyrí Ólafsdóttir.

Þyrí Ólafsdóttir húsfreyja, sjúkraliði fæddist 16. nóvember 1949 á Hvoli við Heimagötu 12.
Foreldrar hennar voru Pétur Ólafur Pálsson frá Héðinshöfða, sjómaður, verkamaður, útgerðarmaður, fiskverkandi, f. 3. nóvember 1927, d. 6. apríl 2011, og kona hans Þórey Guðrún Björgvinsdóttir frá Hvoli, húsfreyja, f. 9. apríl 1931.

Börn Þóreyjar og Ólafs:
1. Þyrí Ólafsdóttir sjúkraliði, f. 16. nóvember 1949 á Hvoli. Maður hennar Snorri Jónsson, látinn.
2. Björgvin Ólafsson skipasali í Reykjavík, f. 4. janúar 1951 á Hvoli. Kona hans Guðrún Jakobsen.
3. Gunnhildur Ólafsdóttir bókhaldskona, f. 14. janúar 1953 að Eyjarhólum. Fyrrum maður hennar Ragnar Guðjónsson Aanes.
4. Guðrún Ólafsdóttir rafvirki, verslunarmaður, f. 25. ágúst 1956 að Kirkjubæjarbraut 18. Fyrrum maður hennar Jón Guðmundsson.
5. Ólafur Þór Ólafsson sölumaður, f. 17. júlí 1961. Kona hans Evelyn Otilia Foelsche Polo.
6. Anna María Ólafsdóttir býr á Englandi, f. 12. febrúar 1967. Maður hennar Carl Oszko.

Þyrí var með foreldrum sínum.
Hún varð sjúkraliði 1996.
Þyrí vann í Sjúkrahúsinu í Eyjum.
Þau Snorri giftu sig 1968, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu við Ásaveg 37 1971, síðar við Boðaslóð 8.
Snorri lést 2023.
Þyrí býr í Hraunbúðum.

I. Maður Þyríar, (14. september 1968), var Snorri Jónsson frá Siglufirði, rafvirkjameistari, f. 14. nóvember 1943, d. 4. febrúar 2023.
Börn þeirra:
1. Ólafur Þór Snorrason iðnrekstrarfræðingur, f. 23. ágúst 1968. Kona hans Þórunn Júlía Jörgensdóttir.
2. Jón Kristinn Snorrason húsamálari, f. 13. mars 1970. Kona hans Lilja Harðardóttir.
3. Hafdís Snorradóttir símavörður, f. 21. desember 1973. Maður hennar Friðrik Þór Steindórsson.
4. Hafþór Snorrason verkamaður, f. 21. desember 1973. Kona hans Dagrún Sigurgeirsdóttir.
5. Bryndís Snorradóttir, f. 18. maí 1980. Maður hennar Davíð Friðgeirsson.



Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sjúkraliðar á Íslandi 1966-1996. Ritstjóri: Sigurður Hermundarson. Mál og mynd 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.