Jóhanna Hjartardóttir (Geithálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnþórunn Jóhanna Hjartardóttir frá Geithálsi við Herjólfsgötu 2, húsfreyja fæddist 7. maí 1914 á Túnsbergi við Vesturveg 22 og lést 5. febrúar 1972.
Foreldrar hennar voru Hjörtur Einarsson vélstjóri, skipstjóri, f. 19. ágúst 1887, d. 30. desember 1975, og kona hans Katrín Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 20. apríl 1895, d. 30. júlí 1951.

Börn Katrínar og Hjartar:
1. Gunnþórunn Jóhanna Hjartardóttir, f. 7. maí 1914 á Túnsbergi, d. 5. febrúar 1972.
2. Óskar Sveinbjörn Hjartarson, f. 4. nóvember 1915 í Þorlaugargerði, d. 5. janúar 1978.
3. Drengur 22. nóvember 1917, d. 1. desember 1917.
4. Alfreð Hjörtur Hjartarson, f. 18. nóvember 1918 í Þorlaugargerði, d. 19. janúar 1981.
5. Guðjón Ragnar Hjartarson, f. 25. febrúar 1920, d. 15. febrúar 1921.
6. Svanhvít Hjartardóttir, f. 30. apríl 1923 Geithálsi, d. 18. desember 2014.
7. Einar Hjartarson, f. 31. janúar 1926 á Geithálsi, d. 31. ágúst 1986.
8. Gísli Hjartarson, f. 8. desember 1927 á Geithálsi, d. 5. janúar 2004.
9. Guðný Ragnheiður Hjartardóttir, f. 10. janúar 1931 á Geithálsi, d. 6. ágúst 2007.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku, á Túnsbergi og Geithálsi.
Hún fór úr Eyjum 1934.
Jóhanna eignaðist ófeðrað barn í Eyjum 1947.
Þau Júlíus giftu sig 1955, eignuðust tvö börn saman og Júlíus ættleiddi barn Jóhönnu. Þau bjuggu við Miklubraut 60.
Jóhanna lést 1972 og Júlíus 1982.

I. Maður Gunnþórunnar Jóhönnnu, (1955), var Júlíus Kristjánsson frá Patreksfirði, sjómaður, fisksali, f. 16. júlí 1905 á Hóli í Tálknafirði, d. 3. júlí 1982. Foreldrar hans voru Kristján Sigurður Guðmundsson sjómaður, f. 18. nóvember 1877, d. 8. mars 1938, og kona hans Bjarney Bjarnadóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1867, d. 19. júlí 1947.
Börn þeirra:
1. Katrín Júlíusdóttir frá Geithálsi, húsfreyja, bóndi í Bakkakoti í Stafholtstungum, f. 4. júní 1947 á Geithálsi. Maður hennar Kristján Franklín Axelsson.
2. Sverrir Júlíusson, f. 25. mars 1950, d. 12. apríl 1976.
3. Svana Ragnheiður Júlíusdóttir, f. 31. júlí 1955.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.