Jóhann Kristinsson (Vinaminni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóhann Kristinsson.

Jóhann Kristinsson frá Grafargerði á Höfðaströnd, Skagafirði, sjómaður, verkamaður fæddist 25. nóvember 1883 og lést 18. desember 1969.
Foreldrar hans voru Kristinn Davíðsson bóndi á Miðhóli í Sléttuhlíð í Skagaf., síðar sjómaður við Eyjafjörð, f. 1838 á Hrappsstöðum í Lögmannshlíðarsókn í Eyjafirði, d. 14. júní 1889 á Siglufirði, og síðari kona hans Helga Baldvinsdóttir húsfreyja, f. 11. maí 1853 á Siglunesi, d. 26. janúar 1918 á Akureyri.

Jóhann var með foreldrum sínum skamma stund, en faðir hans lést af slysförum, er Jóhann var á sjötta árinu. Hann var niðursetningur á Mýrarlóni í Eyjafirði 1890, vinnuhjú á Syðstabæ í Stærri Árskógssókn við Eyjafjörð 1901.
Hann eignaðist barn með Kristínu 1902.
Þau Sigríður giftu sig 1905 á Ólafsfirði, bæði vinnuhjú á Sæbóli þar. Þau eignuðust 12 börn, en misstu eitt þeirra. Þau bjuggu í Guðmundarhúsi á Ólafsfirði 1910, á Hofsósi 1920.
Þau fluttu til Eyja 1930, bjuggu í Vinaminni við Urðaveg 5 með átta börnum sínum 1930, bjuggu þar 1934 með tíu börnum sínum, farin þaðan 1935.
Jóhann bjó síðast á Siglufirði.
Hann lést þar 1969.

I. Barnsmóðir Jóhanns var Kristín Jónsdóttir frá Naustakofa á Höfðaströnd, f. þar 22. nóvember 1867, síðar húsfreyja í Jörundarhúsi í Hrísey, d. 21. janúar 1934.
Barn þeirra:
1. Sigurður Vilhjálmur Jóhannsson sjómaður á Ólafsfirði, f. 13. desember 1902, d. 29. janúar 1978. Kona hans Sigríður Gísladóttir.

II. Kona Jóhanns, (16. júlí 1905), var Sigríður Guðmundsdóttir frá Brimnesi í Ólafsfirði, húsfreyja, f. 31. desember 1882, d. 1965.
Börn þeirra:
1. Magnúsína Jóhannsdóttir húsfreyja á Siglufirði og í Eyjum, síðast í Reykjavík, f. 22. ágúst 1904, d. 13. júní 1974. Maður hennar Guðjón Helgi Kristjánsson.
2. Kornelía Jóhannsdóttir, f. 1. júní 1907, d. 18. október 1996. Maður hennar Angantýr Einarsson.
3. Kristín Helga Jóhannsdóttir húsfreyja í Ráðagerði, f. 6. júlí 1909, d. 6. janúar 1994. Maður hennar Bjarni Júlíus Ólafsson.
4. Kristinn Júlíus Jóhannsson, f. 18. desember 1911, síðast í Reykjavík, d. 22. febrúar 1986.
5. Jóhann Jóhannsson, f. 1913, lést átta mánaða.
6. Jósefína Marsibil Jóhannsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði, f. 12. júní 1914, d. 28. júní 1996. Maður hennar Magnús Guðmundsson.
7. Freymundur Fannberg Jóhannsson sjómaður í Eyjum, f. 14. september 1915, d. 23. október 1996. Kona hans Petrea Guðmundsdóttir.
8. Sigurlína Ása Jóhannsdóttir, f. 14. október 1917, d. 26. febrúar 2008.
9. Guðmundur Gunnólfur Jóhannsson, f. 2. apríl 1920, d. 26. júní 1940.
10. Guðleif Jóhannsdóttir húsfreyja í Hull á Englandi, f. 7. nóvember 1922, d. 19. apríl 2006. Maður hennar Henry Albert Drake múrari.
11. Maggý Helga Jóhannsdóttir, síðast í Kópavogi, f. 26. apríl 1924 á Siglufirði, d. 29. mars 2003. Maður hennar Tómas Jónsson.
12. Gunnar Jóhannsson sjómaður á Siglufirði, f. 8. febrúar 1927 í Reykjavík, d. 23. apríl 2015. Kona hans Valey Jónasdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1850-1890. Margir höfundar, en aðalhöfundur: Guðmundur Sigurður Jóhannsson. Umsjón og ritstjórn: Hjalti Pálsson frá Hofi. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1981-1999.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.