Ingibjörg Guðmundsdóttir (Haukfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sesselja Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Bjargarsteini í Stafholtstungum í Mýrasýslu, bústýra, húsfreyja fæddist þar 26. ágúst 1894 og lést 19. júní 1971.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Bjarnason bóndi, smiður víða í Borgarfirði, f. 6. janúar 1858, d. 7. júlí 1929, og kona hans Borghildur Símonardóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1864, d. 8. júní 1931.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í Bjargarsteini 1894, með leigjandanum móður sinni í Munaðarnesi, Mýras. 1901, var fósturdóttir Hildar Guðmundsdóttur og Guðmundar Loftssonar á Hverfisgötu 5 í Reykjavík 1910.
Hún eignaðist barn með Valdimar í Reykjavík 1915.
Þau Gísli hófu búskap í Eyjum, eignuðust níu börn, en fjögur komust ekki til fullorðinsára. Þau bjuggu í Höfðahúsi við Vesturveg 8, í Uppsölum-efri, en lengst á Haukfelli við Hvítingaveg 2.
Gísli lést 1931 og Ingibjörg 1971.

I. Barnsfaðir Ingibjargar var Valdimar Kristmundsson, f. 7. maí 1888, d. 17. ágúst 1964.
Barn þeirra:
1. Ágúst Hólm Valdimarsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 17. ágúst 1915, d. 27. apríl 1947.

I. Sambúðarmaður Ingibjargar var Gísli Jónsson frá Núpi u. Eyjafjöllum, skipstjóri, f. þar 18. mars 1889, d. 30. desember 1931.
Börn Ingibjargar og Gísla:
1. Ágúst Hólm Valdimarsson (sjá ofar), sonur Ingibjargar, f. 17. ágúst 1915 í Reykjavík, d. 27. apríl 1947.
2. Guðný Gísladóttir, f. 21. nóvember 1918 í Höfðahúsi, d. 5. júní 2001.
3. Sigríður Kamilla Gísladóttir, f. 26. október 1919 í Uppsölum, d. 14. mars 2009.
4. Pétur Gíslason, f. 11. febrúar 1922 í Uppsölum, d. 21. febrúar 1936.
5. Sigurður Gíslason, f. 1. september 1923 á Haukfelli, d. 22. maí 2010.
6. Ársæll Gíslason, f. 31. desember 1925, d. 31. mars 1927.
7. Sigurjón Steinar Gíslason, f. 20. desember 1927 á Haukfelli, d. 3. ágúst 1935.
8. Guðmundur Borgar Gíslason, f. 30. september 1930 á Haukfelli, d. 24. mars 2018.
9. Gísli Ingimar Gíslason, f. 15. febrúar 1932, d. 4. júlí 1935.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.