Inga Jóhanna Bergsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Inga Jóhanna Bergsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á elliheimilinu á Dalvík fæddist 7. janúar 1999 í Eyjum.
Foreldrar hennar Bergur Guðnason, skipstjóri, f. 24. desember 1964, og kona hans Jónína Björk Hjörleifsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, ræstitæknir, listakona, f. 24. maí 1966.

Börn Jónínu og Bergs:
1. Esther Bergsdóttir kennari, f. 31. júlí 1985. Barnsfaðir hennar Guðni Sigurður Guðjónsson. Maður hennar Guðgeir Jónsson.
2. Drengur Bergsson, f. 1987, d. 1987.
3. Ingvar Örn Bergsson sjómaður, f. 21. mars 1989.
4. Þórir Bergsson flugvirki, f. 29. júlí 1992. Fyrrum sambúðarkona hans Viktoria Walczyk.
5. Inga Jóhanna Bergsdóttir, húsfreyja, starfsmaður elliheimilis, f. 7. janúar 1999. Maður hennar Sindri Ólafsson.

1. Þau Sindri giftu sig 2023, hafa eignast eitt barn. Þau bjugggu við Litlagerði 2, en búa nú á Dalvík.

I. Maður Ingu Jóhönnu, (18. október 2023), er Sindri Ólafsson, þyrluflugmaður, f. 21. febrúar 1997. Barn þeirra:
1. Ísabella Sindradóttir, f. 12. október 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.