Hrefna Elíasdóttir (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hrefna Elíasdóttir.

Hrefna Elíasdóttir frá Bala í Þykkvabæ, húsfreyja í Vestari-Uppsölum fæddist 24. febrúar 1920 í Reykjavík og lést 3. júní 2006 á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Elías Nikulásson verkamaður, síðan bóndi í Holtum, Rang., f. 29. júní 1881 í Norður-Áskoti í Ásahreppi, d. 25. febrúar 1959 í Keflavík, og kona hans Kristín Mensaldersdóttir frá Moldartungu í Holtum, húsfreyja, f. 7. júlí 1877, d. 1. apríl 1965.

Systir Hrefnu var
1. Þórunn Elíasdóttir húsfreyja í Steinholti, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990. Maður hennar var Baldvin Skæringsson.

Hrefna var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjavík, á Bala í Djúpárhreppi 1929-1938 stutta stund í Háarima þar.
Hún flutt til Eyja og þau Jóhann Ingvar giftu sig 1939, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Uppsölum í fyrstu, síðan á Faxastíg 11, en fluttu til Reykjavíkur 1963. Þau bjuggu í Bólstaðarhlíð 68, en byggðu Byggðarholt 14 í Mosfellsbæ og bjuggu þar til 1998, en síðan í þjónustuíbúð í Hæðargarði 35. Að síðustu dvöldu þau saman á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Hrefna lést 2006 og Jóhann Ingvar 2007.

I. Maður Hrefnu, (23. desember 1939), var Jóhann Ingvar Gíslason frá Uppsölum, sjómaður, vélstjóri, húsamiður, bifreiðastjóri, síðar húsvörður , f. 27. ágúst 1917, d. 25. desember 2007.
Börn þeirra:
1. Ásta Jóhannsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður í Reykjavík, f. 28. júní 1940 í Uppsölum. Maður hennar, skildu, var Karl Friðrik Kristjánsson, látinn. Síðari maður hennar Gísli Ástvaldur Eiríksson, látinn.
2. Jóhanna Jóhannsdóttir húsfreyja, fóstra, f. 11. október 1943 á Faxastíg 11, d. 21. apríl 2005. Maður hennar Sigurður Rúnar Símonarson.
3. Óskar Jóhannsson prentsmiður, f. 25. október 1947 á Faxastíg 11. Kona hans Valgerður G. Sigurðardóttir.
4. Sigurður Gísli Jóhannsson vélstjóri, bifvélavirki, sölumaður, f. 18. september 1950 í Uppsölum. Fyrri kona hans Guðrún Björnsdóttir, látinn. Síðari kona hans Þóra Sigurðardóttir.
5. Kristín Jóhannsdóttir húsfreyja, bókasafnsfræðingur, bankastarfsmaður, móttökuritari, f. 12. júní 1957. Maður hennar Jón Gunnar Borgþórsson


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.is.
  • Kristín.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 16. júní 2006. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.