Hrafnhildur Sigurðardóttir (ritari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hrafnhildur Sigurðardóttir, húsfreyja, ritari í Tónlistarskólanum í Eyjum fæddist 24. júní 1960.
Foreldrar hennar Ingibjörg Ólafsdóttir Bjartmars, húsfreyja, verslunarmaður, f. 22. október 1940, og Sigurður Þór Ögmundsson, sjómaður, f. 8. nóvember 1940.

Börn Ingibjargar og Sigurðar:
1. Hrafnhildur Sigurðardóttir húsfreyja, ritari í Tónlistarskólanum í Eyjum, f. 24. júní 1960. Fyrrum sambúðarmaður Guðmundur Ólafsson. Maður hennar Aðalsteinn Jóhannsson frá Akureyri.
2. Ingunn Björk Sigurðardóttir Bjartmars húsfreyja, matartæknir á Sjúkrahúsinu, f. 5. desember 1961. Maður hennar Sigurður Ólafur Steingrímsson. Sambúðarmaður hennar Baldur Þór Bragason. Maður hennar Heimir Guðmundsson, látinn.
3. Ólafur Sigurðsson sjómaður, matsveinn, f. 18. júli 1964. Kona hans Hrönn Gunnarsdóttir.

Þau Guðmundur hófu sambúð, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Aðalsteinn giftu sig, eignuðust ekki börn saman.

I. Fyrrum sambúðarmaður Hrafnhildar er Guðmundur Ólafsson, Baadermaður í Noregi, f. 5. ágúst 1958.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Björk Guðmundsdóttir, f. 17. nóvember 1980.
2. Ingibjörg Bjartmars Guðmundsdóttir, f. 18. apríl 1986.
3. Anna Marý Guðmundsdóttir, f. 28. apríl 1997.

II. Maður Hrafnhildar er Aðalsteinn Jóhannsson, verslunarstjóri, f. 19. júlí 1961.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.