Hermann Helgi Traustason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hermann Helgi Traustason vinnuvélastjóri, borstjóri fæddist 1. maí 1962.
Foreldrar hans Trausti Eyjólfsson búfræðingur, hótelstjóri, æskulýðsfulltrúi, kennari, skólastjóri, f. 19. febrúar 1928, d. 30. ágúst 2020, og kona hans Jakobína Jónasdóttir frá Grænavatni í Mývatnssveit, húsfreyja, matráðskona, félagsmálafrömuður, f. 26. mars 1927, d. 29. nóvember 2016.

Börn Jakobínu og Trausta:
1. Jónas Traustason kennari, íþróttakennari, bifreiðakennari, f. 22. ágúst 1949. Fyrrum kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir. Kona hans Ha Thi Nuyens.
2. Hólmfríður Traustadóttir húsfreyja, verslunarmaður, dagmóðir, f. 16. mars 1951. Maður hennar Jón Karlsson.
3. Líney Traustadóttir húsfreyja, skólaliði, f. 9. október 1952. Maður hennar Jósef Rafnsson.
4. Hildur Traustadóttir húsfreyja í Köldukinn og á Hvanneyri, f. 16. febrúar 1955. Fyrrum maður hennar Þorgeir Jónsson. Maður hennar Ari Ingimundarson.
5. Kristbjörg Traustadóttir húsfreyja, skrúðgarðyrkjumaður, búfræðingur, landslagsarkitekt, hönnuður á Akranesi, f. 13. febrúar 1957. Barnsfaðir hennar Hörður Sigurðsson. Maður hennar Björgvin K. Björgvinsson.
6. Áslaug Traustadóttir húsfreyja, landslagsarkitekt, f. 31. desember 1958. Maður hennar Guðmundur J. Albertsson.
7. Hermann Helgi Traustason vinnuvélastjóri, borstjóri, f. 1. maí 1962. Kona hans Margrét Jósefsdóttir.
8. Eysteinn Traustason tækniteiknari, innkaupastjóri, f. 28. júní 1966, ókvæntur.

Þau Margrét giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Hvanneyri í Borgarfirði.

I. Kona Hermanns Helga er Margrét Jósefsdóttir húsfreyja, stöðvarstjóri, f. 20. febrúar 1966. Foreldrar hennar Jósef Fransson frá Ungverjalandi, sjómaður, kranamaður, starfsmaður Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga, f. 12. apríl 1936, d. 5. febrúar 1997, og Aldís Sigurjónsdóttir, húsfreyja, f. 1. september 1941, d. 18. júlí 2008.
Börn þeirra:
1. Arnór Orri Hermannsson, f. 9. apríl 1986.
2. Kolbrún Rós Hermannsdóttir, f. 15. júlí 1988.
3. Hugrún Björt Hermannsdóttir, f. 17. október 1995.
4. Hlynur Hermannsson, f. 4. maí 1997.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.