Eysteinn Traustason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eysteinn Traustason tækniteiknari, innkaupastjóri fæddist 28. júni 1966.
Foreldrar hennar voru Trausti Eyjólfsson búfræðingur, hótelstjóri, æskulýðsfulltrúi, kennari, skólastjóri, f. 19. febrúar 1928, d. 30. ágúst 2020, og kona hans Jakobína Jónasdóttir frá Grænavatni í Mývatnssveit, húsfreyja, matráðskona, félagsmálafrömuður, f. 26. mars 1927, d. 29. nóvember 2016.

Börn Jakobínu og Trausta:
1. Jónas Traustason kennari, íþróttakennari, bifreiðakennari, f. 22. ágúst 1949. Fyrrum kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir. Kona hans Ha Thi Nuyens.
2. Hólmfríður Traustadóttir húsfreyja, verslunarmaður, dagmóðir, f. 16. mars 1951. Maður hennar Jón Karlsson.
3. Líney Traustadóttir húsfreyja, skólaliði, f. 9. október 1952. Maður hennar Jósef Rafnsson.
4. Hildur Traustadóttir húsfreyja í Köldukinn og á Hvanneyri, f. 16. febrúar 1955. Fyrrum maður hennar Þorgeir Jónsson. Maður hennar Ari Ingimundarson.
5. Kristbjörg Traustadóttir húsfreyja, skrúðgarðyrkjumaður, búfræðingur, landslagsarkitekt, hönnuður á Akranesi, f. 13. febrúar 1957. Barnsfaðir hennar Hörður Sigurðsson. Maður hennar Björgvin K. Björgvinsson.
6. Áslaug Traustadóttir húsfreyja, landslagsarkitekt, f. 31. desember 1958. Maður hennar Guðmundur J. Albertsson.
7. Hermann Helgi Traustason vinnuvélastjóri, bormaður, f. 1. maí 1962. Kona hans Margrét Jósefsdóttir.
8. Eysteinn Árni Traustason tækniteiknari, innkaupastjóri, f. 28. júní 1966, ókvæntur.

Eysteinn eignaðist þrjú börn með Regínu Unni, en fyrsta barnið fæddist andvana.

I. Barnsmóðir Eysteins er Regína Unnur Beck Margrétardóttir, f. 6. janúar 1970. Foreldrar hennar Ómar Daníel Bergmann, f. 21. mars 1945, d. 1. desember 2017, og Margrét Rannveig Jónsdóttir, f. 7. febrúar 1951.
Börn þeirra:
1. Andvana stúlka (Mist), f. 20. júní 1996.
2. Helgi Daníel Eysteinsson, f. 21. janúar 1998.
3. Máni Már Eysteinsson, f. 14. ágúst 2006.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.