Helga Tómasdóttir (Kanastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Helga Tómasdóttir frá Kanastöðum, húsfreyja, verslunarmaður fæddist þar 6. júlí 1936.
Foreldrar hennar voru Tómas Geirsson kaupmaður, f. 20. júní 1912, d. 24. febrúar 1991, og kona hans Dagný Ingimundardóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 27. ágúst 1914, d. 16. apríl 2011.

Börn Dagnýjar og Tómasar:
1. Helga Tómasdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 6. júlí 1936 á Kanastöðum. Maður hennar Reynir Frímann Másson, látinn.
2. Sigurður Ágúst Tómasson sölustjóri, skrifstofustjóri, gjaldkeri, f. 12. maí 1942 á Kanastöðum. Kona hans Guðrún Jóhanna Jakobsdóttir.
3. Geirrún Tómasdóttir húsfreyja, f. 2. apríl 1946 á Kirkjuvegi 72, d. 29. apríl 2014. Maður hennar Jóhannes Kristinsson, látinn.

Helga var með foreldrum sínum í æsku, á Kanastöðum og á Kirkjuvegi 72.
Hún gekk í Kvöldskóla iðnaðarmanna, sótti Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1954-1955.
Helga var verslunarmaður á yngri árum, afgreiddi m.a. á Tanganum og í Framtíðinni. Þá vann hún á Sjúkrahúsinu.
Þau Reynir giftu sig 1956, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Kirkjuvegi 72, byggðu við Birkihlíð 7 og bjuggu þar.
Reynir lést 1979. Helga býr í Birkihlíð 7.

Maður Helgu, (28. janúar 1956), var Reynir Másson frá Valhöll, verslunarstjóri, f. 29. janúar 1933, d. 19. júní 1979.
Börn þeirra:
1. Dagný Reynisdóttir kennari í Reykjavík, f. 11. maí 1957. Maður hennar Jón Ingi Einarsson.
2. Helgi Már Reynisson sjávarútvegsfræðingur, kaupsýslumaður í Hafnarfirði, f. 26. febrúar 1961, d. 17. júlí 2023. Kona hans Inga Líndal Finnbgadóttir.
3. Fríður Reynisdóttir náms- og starfsráðgjafi í Reykjavík, f. 8. júlí 1966. Maður hennar Björgvin R. Pálsson.
4. Geir Reynisson vinnuvélastjóri í Eyjum, f. 24. febrúar 1969. Kona hans Sigþóra Guðmundsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.