Helga Sigurgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Helga og tengdamóðir hennar Sigríður Friðriksdóttir.

Helga Sigurgeirsdóttir húsmóðir og sjúkrahússtarfsmaður fæddist 11. nóvember 1936 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurgeir trésmiður í Reykjavík, f. 9. ágúst 1906, d. 9. september 1985, Guðjóns bónda á Gneistastöðum í Hraungerðishreppi, d. 1908, og konu (1902) Guðjóns, Helgu húsfreyju, síðar (1910) vinnukonu á Skarði á Landi, f. 26. júní 1870, d. 12. apríl 1953, Jónsdóttur frá Hárlaugsstöðum í Holtum. Móðir Helgu Sigurgeirsdóttur og kona Guðjóns var Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. október 1907, d. 11. apríl 1998, Ólafs bónda í Akurey í Landeyjum, Ólafssonar.

Helga ólst upp í Reykjavík, flutti til Eyja við hjónaband þeirra Jóns Bergs 1959. Í Eyjum rak hún heimilið, en eftir flutning þeirra til Hafnarfjarðar starfaði hún einnig lengi á Jósefsspítala þar. Hún býr nú í Hafnarfirði.

Maki (1959): Jón Berg Halldórsson skipstjóri og verkstjóri.

Börn þeirra Jóns Bergs:
1. Halldór Berg Jónsson iðnrekandi, f. 5. febrúar 1959 í Eyjum.
2. Sigurbjörg Jónsdóttir bókari, f. 1. marz 1961 í Eyjum.
3. Ólafur Þór Jónsson pípulagningameistari, f. 6. nóvember 1962 í Eyjum, d. 10. desember 2020 í Hafnarfirði.
Fyrir hjónaband átti Helga barn með Meyvant Meyvantssyni, f. 16. maí 1930, d. 9. janúar 2014. Það er
4. Guðmundur Meyvantsson togarasjómaður í Hafnarfirði, f. 23. október 1955 í Reykjavík.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.