Helga Lovísa Jónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Helga Lovísa Jónsdóttir.

Helga Lovísa Jónsdóttir frá Viðvíkursveit í Skagafirði, húsfreyja fæddist 9. júní 1912 að Blöndudalshólum í A.-Hún. og lést 25. febrúar 2000 á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Foreldrar hennar voru Jón Kristvinsson bóndi á Vatnsleysu í Viðvíkursveit, síðar að Garðakoti í Hjaltadal, Skagaf., f. 29. október 1877, d. 12. apríl 1970, og kona hans Guðný Anna Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. september 1886, d. 14. janúar 1972.

Helga var með foreldrum sínum og sjö systkinum.
Þau Arnþór giftu sig 1936, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt barnið nýfætt. Þau bjuggu í Norðfirði og Öxarfirði, fluttu til Eyja 1948, bjuggu í Viðey við Vestmannabraut 30 og í Fagranesi við Hásteinsveg 34. Þau fluttu til Reykjavíkur 1966.
Arnþór lést 1983 og Helga Lovísa árið 2000.

I. Maður Helgu Lovísu, (7. maí 1936), var Arnþór Árnason frá Garði í Mývatnssveit, kennari, f. 28. október 1904, d. 19. október 1983.
Börn þeirra:
1. Ásrún Björg Arnþórsdóttir, f. 26. mars 1938 á Norðfirði, d. 6. október 2017. Fyrrum maður hennar Hálfdán Ágúst Jónsson. Maður hennar Sigmundur Indriði Júlíusson.
2. Árni Jón Arnþórsson, f. 4. júlí 1944. Kona hans Ragnhildur Ásmundsdóttir.
3. Drengur, f. 30. ágúst 1949, d. 2. september 1949.
4. Helga Arnþórsdóttir, f. 12. september 1952 í Eyjum. Maður hennar Bjarni Sigurðsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Morgunblaðið 5. mars 2000. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.