Hansína Hannesdóttir (Hvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Hansína Hannesdóttir.

Hansína Hannesdóttir frá Hvoli, húsfreyja, síðast í Kópavogi fæddist 23. ágúst 1914 í Mjóafirði eystra og lést 2. mars 2006.
Foreldrar hennar voru Hannes Hansson skipstjóri, útgerðarmaður, afgreiðslumaður, f. 5. nóvember 1891, d. 18. júní 1974, og kona hans Magnúsína Friðriksdóttir frá Gröf, húsfreyja, f. 14. maí 1889, d. 19. apríl 1983.

Börn Hannesar og Magnúsínu voru:
1. Ögmundur Friðrik Hannesson sjómaður, f. 16. maí 1911 í Gröf, d. 25. október 2002.
2. Guðbjörg Hannesdóttir, f. 11. janúar 1912 í Landakoti, skírð skemmri skírn, d. 31. janúar 1912.
3. Einar Kjartan Trausti Hannesson skipstjóri, stýrimaður, verkstjóri, f. 27. júní 1913 í Landkoti, d. 23. janúar 1999.
4. Hansína Hannesdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1914 í Holti í Mjóafirði eystra, d. 2. mars 2006.
5. Ottó Hannesson vélstjóri, f. 5. ágúst 1915 á Hvoli við Heimagötu, d. 26. desember 1966.
6. Ingimar Hannesson, f. 14. maí 1917, d. 25. september 1917.
7. Elías Theodór Hannesson, f. 1. júní 1918 á Hvoli við Heimagötu, d. 9. nóvember 1927.
8. Vigdís Hannesdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. desember 1919 á Hvoli við Heimagötu, d. 28. maí 2006.
9. Árni Hannesson vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921 á Hvoli við Heimagötu, d. 4. júní 1999.
10. Andvana drengur, f. 10. mars 1926.
11. Ágúst Eiríksson Hannesson smiður, f. 2. ágúst 1927 á Hvoli við Heimagötu, d. 31.janúar 1951, fórst með flugvélinni Glitfaxa.
12. Guðbjörg Kristín Hannesdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 22. október 1929 á Hvoli við Heimagötu.

Hansína ólst upp með foreldrum sínum, fluttist með þeim frá Mjóafirði til Eyja 1914.
Hún var með þeim í Landakoti í lok árs 1914, var komin að Hvoli (við Heimagötu) 1915. Þar bjó hún með þeim og fluttist í nýbyggt hús þeirra að Hvoli (við Urðarveg) 1929 og var þar með þeim 1930.
Hansína fluttist úr bænum, eignaðist Geir með Magnúsi 1936. Þau giftu sig 1937, eignuðust Jónínu 1941.
Magnús lést 1988 og Hansína lést 2006 á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi.

Maður Hansínu, (1937), var Magnús Geirsson starfsmaður Eimskips, f. 15. júní 1915, d. 2. maí 1988.
Börn þeirra:
1. Geir Magnússon starfsmaður Hafrannsóknastofnunar, f. 29. júní 1936, d. 7. júlí 1970.
2. Jónína Magnúsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, fulltrúi hjá Þjóðhagsstofnun, f. 14. desember 1941. Maður hennar er Jens Karlsson aðalbókari, f. 26. júní 1938.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.