Halldór Jón Jónsson (Búrfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Dóri Ben
Hallgrímur Þórðarson og Dóri.

Halldór Jón Jónsson fæddist 6. júní 1926 í Stakkholti og lést 26. september 1999. Foreldrar hans voru Kristín Karítas Valdadóttir og Jón Benónýsson. Halldór Jón var kvæntur Halldóru Jónsdóttur. Börn þeirra eru Margrét Jóna, Ólöf Þórey og Eyja Þorsteina.

Halldór, sem oft var nefndur Dóri Ben, vann í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum í langan tíma en áður þá tengdist hann útgerð verulega því hann gerði út vélbátinn Sæfaxa VE 25 ásamt mági sínum, Þórarni Eiríkssyni en á sjónum hætti hann vegna eitrunar sem leiddi til þess að hann var bundinn við hjólastól. Útgerðin hjá þeim var ætíð til fyrirmyndar þó svo að báturinn hafi ekki verið stór.


Heimildir