Halldór Guðbjörnsson (skipstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Halldór Guðbjörnsson.

Halldór Guðbjörnsson úr Reykjavík, skipstjóri fæddist þar 30. janúar 1961 og lést 15. febrúar 2012.
Foreldrar hans voru Guðbjörn Guðmundsson, f. 21. júní 1941, d. 15. desember 2000, og kona hans Jóhanna Halldórsdóttir húsfreyja, f. 3. maí 1940.

Halldór lauk skipstjóranámi í Stýrimannaskólanum í Eyjum 1979 og farmannaprófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1980.
Hann var til sjós á ýmsum skipum, en varð skipstjóri á Frá VE 78. Halldór var framkvæmdastjóri Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi í Eyjum frá 1995, var félagi í Kiwanisklúbbnum Helgafelli frá 1992 og Frímúrarareglunni á Íslandi frá 2001.
Þau Helga giftu sig 1980, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu fyrst hjá Önnu og Símoni á Túngötu 23, þá við Ásaveg 12, en síðast við Stóragerði 5.
Halldór lést 2012.

I. Kona Halldórs, (5. apríl 1980), er Helga Ásta Símonardóttir húsfreyja, f. 13. maí 1962. Foreldrar hennar voru Símon Kristjánsson frá Stað við Helgafellsbraut 10, málari, framkvæmdastjóri, f. 2. september 1926, d. 6. október 1997, og kona hans Anna Tómasdóttir húsfreyja, talsímakona, verkakona, f. 28. apríl 1931, d. 5. maí 2003.
Börn þeirra:
1. Símon Halldórsson, f. 19. janúar 1980. Kona hans Jóna Guðlaug Þorvaldsdóttir.
2. Jóhann Halldórsson, f. 19. janúar 1980. Kona hans Guðný Ólafsdóttir.
3. Anna Halldórsdóttir, f. 28. janúar 1983. Maður hennar Halldór Sölvi Haraldsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


[[Flokkur: Skipstjórar]