Anna Tómasdóttir (Tommahúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Anna Tómasdóttir.

Anna Tómasdóttir húsfreyja, talsímakona, starfsmaður bókasafns, verkakona fæddist 28. apríl 1931 í Reykholti við Urðaveg 15 og lést 5. maí 2003.
Foreldrar hennar voru Tómas Sveinsson frá Selkoti u. Eyjafjöllum, útgerðarmaður, verkstjóri, verslunarmaður, f. þar 14. ágúst 1903, d. 20. apríl 1988, og kona hans Líney Guðmundsdóttir frá Skagaströnd, húsfreyja, f. 23. desember 1901 í Hólagerði þar, d. 7. febrúar 1997.

Börn Líneyjar og Tómasar:
1. Anna Tómasdóttir húsfreyja, starfsmaður Landsímans og Bókasafns Vestmannaeyja. Maður hennar Símon Kristjánsson.
2. Guðmar Tómasson skipstjóri, f. 6. apríl 1933, d. 25. júlí 1967. Kona hans Sigríður Lárusdóttir.
3. Sveinn Tómasson prentari, vélstjóri, forseti bæjarstjórnar, f. 24. nóvember 1934, d. 25. mars 2001. Kona hans Ólöf Dóra Sigurðardóttir Waage.

Anna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var talsímavörður hjá Landsímanum, síðar á Bókasafninu og í Þurrkhúsinu.
Anna söng í Samkórnum og Kirkjukórnum.
Þau Símon giftu sig 1952, eignuðust tvö kjörbörn. Þau bjuggu í fyrstu á Stað, en síðan við Túngötu 23.
Símon lést 1997 og Anna 2003.

I. Maður Önnu, (8. nóvember 1952), var Símon Kristjánsson frá Stað, málari, verkstjóri, framkvæmdastjóri, útgerðarmaður, fiskverkandi, umbúðavörður og afgreiðslumaður hjá Síldarútvegsnefnd, f. 2. september 1926, d. 7. október 1997.
Börn þeirra, (kjörbörn):
1. Helga Ásta Símonardóttir húsfreyja í Eyjum, f. 13. maí 1962. Maður hennar Halldór Guðbjörnsson.
2. Líney Símonardóttir lífeindafræðingur í Reykjavík, f. 1. maí 1966. Maður hennar Friðþjófur Árnason.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Morgunblaðið 10. maí 2003. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.