Gunnar Stefán Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gunnar Stefán Jónsson bæjargjaldkeri fæddist 20. ágúst 1939 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Jón Stefánsson frá Fagurhól, strætisvagnastjóri, iðnverkamaður, næturvörður, ritstjóri, f. 28. ágúst 1909, d. 19. mars 1991, og kona hans Elísabet Kristjánsdóttir frá Svínhóli í Miðdölum, húsfreyja, f. þar 1. desember 1919, d. 23. janúar 2004.

Börn Elísabetar og Jóns:
1. Gunnar Stefán Jónsson bæjargjaldkeri, f. 20. ágúst 1939. Kona hans Ragnheiður Björgvinsdóttir.
2. Hermann Kristján Jónsson gjaldkeri, f. 10. júní 1945. Kona hans Herdís Tegeder.
3. Ágústína Jónsdóttir bankastarfsmaður, f. 11. október 1949 í Godthaab, d. 29. september 2014. Maður hennar Jóhann Ásgeirsson.

Gunnar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1955.
Gunnar vann um skeið við afgreiðslu á Pósthúsinu, var gjaldkeri í Sparisjóðnum og síðan bæjargjaldkeri í meira en 30 ár.
Þau Ragnheiður giftu sig 1968, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Ásavegi 23 til Goss 1973, dvöldu í Reykjavík í Gosinu, en fluttu heim í júlí 1973, bjuggu í Blokkinni við Hásteinsveg 60 til 1974, er þau keyptu húsið við Illugagötu 11, bjuggu þar til 1998, er þau minnkuðu við sig og fluttu í Blokkina.

I. Kona Gunnars Stefáns, (16. nóvember 1968), er Ragnheiður Björgvinsdóttir frá Viðey, húsfreyja, verkakona, skrifstofumaður, f. 28. mars 1942.
Börn þeirra:
1. Ívar Gunnarsson læknir, svæfingalæknir í Reykjavík, f. 6. ágúst 1968. Kona hans Ragna Lára Jakobsdóttir.
2. Jón Ragnar Gunnarsson matvælafræðingur, starfsmaður heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.