Elísabet Kristjánsdóttir (Svínhóli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elísabet Kristjánsdóttir.

Elísabet Kristjánsdóttir frá Svínhóli í Miðdölum, Dal., húsfeyja fæddist þar 1. desember 1919 og lést 23. janúar 2004.
Foreldrar hennar voru Kristján Nikulásson frá Kringlu í Miðdölum, þá húsmaður, síðar verkamaður í Reykjavík, f. 8. júní 1884, d. 17. febrúar 1985, og kona hans Ágústína Ögmundsdóttir frá Breiðabólstað í Miðdölum, húsfreyja, f. 3. júlí 1889, d. 20. september 1952.

Elísabet var með foreldrum sínum, flutti með þeim til Reykjavíkur 1923.
Hún vann í mötuneyti Menntaskólans í Reykjavík og við heimilishjálp.
Árið 1948 flutti hún með Jóni til Eyja og bjó þar alla tíð nema sjö mánuði í Reykjavík við Gosið 1973. Þau fluttu til baka í ágúst 1973. Elísabet starfaði við ræstingar. Hún vann í mörg ár í Mæðrastyrksnefnd Vestmannaeyja og var formaður hennar um skeið. Einnig starfaði hún mikið fyrir KFUK í Eyjum.
Þau Jón giftu sig 1939, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Godthaab við Strandveg 11, á Bifröst við Bárustíg 11, á Helgafellsbraut 25, síðar á Heiðarvegi 50.
Jón lést 1991 og Elísabet 2004.

I. Maður Elísabetar, (13. maí 1939), var Jón Stefánsson frá Fagurhól, næturvörður á Loftskeytastöðinni, ritstjóri, f. 28. ágúst 1909, d. 19. mars 1991.
Börn þeirra:
1. Gunnar Stefán Jónsson bæjargjaldkeri, f. 20. ágúst 1939. Kona hans Ragnheiður Björgvinsdóttir.
2. Hermann Kristján Jónsson gjaldkeri, f. 10. júní 1945. Kona hans Herdís Tegeder.
3. Ágústína Jónsdóttir bankastarfsmaður, f. 11. október 1949 í Godthaab, d. 29. september 2014. Maður hennar Jóhann Ásgeirsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.