Áslaugur Stefánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur Jóelsson og Áslaugur Stefánsson.

Áslaugur, eða Laugi í Mandal, eins og hann var kallaður af Eyjabúum, var fæddur í Hraungerði í Álftaveri 22. júní 1899, dáinn 1. júlí 1981.

Áslaugur var vinnumaður víða í V-Skaftafellssýslu og fór fyrst á vertíð til Vestmannaeyja árið 1919. Árið 1925 tók hann herbergi á leigu hjá Jóni Ingimundarsyni í Mandal, og leigði það til 1945.

Frekari umfjöllun

Áslaugur Ingibjörn Stefánsson frá Hraungerði í Álftaveri, V.-Skaft., sjómaður fæddist þar 2. júní 1899 og lést 1. júlí 1981.
Foreldrar hans voru Stefán Jónsson húsmaður í Hraungerði, síðar sjúklingur á Laugarnesspítala, f. 4. apríl 1861 í Holti í Álftaveri, d. 25. júlí 1905, og kona hans Guðlaug Einarsdóttir húskona, síðar húsfreyja, f. 15. febrúar 1874 í Kerlingardal í Mýrdal, d. 6. janúar 1962 í Ytri-Njarðvík. Stjúpfaðir Áslaugs var Helgi Brynjólfsson bóndi, f. 23. mars 1878, d. 10. september 1949.

Áslaugur var með foreldrum sínum í Hraungerði til 1903, með móður sinni í Sauðhúsnesi í Álftaveri 1903-1905, í Hraungerði 1905-1906, hjá móður sinni og Helga stjúpa sínum í Holti þar 1906-1916. Hann var vinnumaður í Reynishjáleigu í Mýrdal 1916-1918, á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri 1918-1919, í Norðurhjáleigu þar 1919-1921, í Vík í Mýrdal 1921-1931.
Hann fór til Eyja 1931, var sjómaður þar. Hann bjó hjá Gyðríði (Gyðu) Stefánsdóttur í Mandal 1940.
Áslaugur lést 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.