Guðmundur Einarsson (Uppsölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Einarsson bóndi á Leirum u. Eyjafjöllum, síðar verkamaður í Uppsölum fæddist 4. júlí 1867 að Hrútafelli u. Eyjafjöllum og lést 29. júní 1950.
Foreldrar hans voru Einar Einarsson bóndi u. Eyjafjöllum, f. 11. ágúst 1821, d. 27. janúar 1902, og kona hans Oddný Arnoddsdóttir húsfreyja, f. 10. janúar 1826, d. 18. nóvember 1899.

Systir Guðmundar var Ásbjörg Einarsdóttir vinnukona, f. 24. maí 1865, d. 9. febrúar 1952.

Guðmundur var með foreldrum sínum í Efra-Hrútafellskoti 1870, á Hrútafelli 1880, var bóndi með bústýrunni Guðrúnu Þorfinnsdóttur í Ystabæliskoti 1890, kvæntur bóndi á Leirum 1901. Hann var þar einnig 1910 með Guðrúnu konu sinni og 6 börnum þeirra.
Þau Guðrún fluttust til Eyja 1912 með 6 börn sín, en hin börnin fluttust til Eyja næstu árin. Hjónin bjuggu á Kirkjubæ 1912, en síðan í Uppsölum.
Guðrún lést 1930.
Guðmundur bjó áfram í Uppsölum með nokkrum börnum sínum, Steinvöru, Einari Jóni og Önnu Sigurlaugu, sem var sjúklingur.
Guðrún dóttir þeirra bjó í sama húsi með fjölskyldu sinni í nokkur ár.
Guðmundur lést 1950.

ctr


Guðrún Þorfinnsdóttir og Guðmundur Einarsson.


ctr


Hjónin í Uppsölum og nokkur börn þeirra.
Neðri röð frá vinstri: Þorfinna, Guðrún, Guðmundur, Steinvör.
Efri röð frá vinstri: Guðrún, Oddný, Árný, Guðmundur, Jón og Sigurður.
Á myndina vantar Sigríði, Önnu og Einar.


Kona Guðmundar, (1890), var Guðrún Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1862, d. 27. janúar 1930.
Börn Guðmundar og Guðrúnar hér:
1. Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum, (Brekastíg 30), f. 18. apríl 1891, d. 16. september 1988.
2. Einar Guðmundsson, f. 12. júlí 1892, drukknaði 3. febrúar 1915 í Eyjum.
3. Þorfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. júní 1893, d. 26. október 1984.
4. Steinvör Guðmundsdóttir, f. 17. ágúst 1895, bjó síðast í Eyjum, d. 13. mars 1987.
5. Oddný Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 17. nóvember 1897, d. 9. desember 1980.
6. Einar Jón Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 24. janúar 1898, d. 20. janúar 1975.
7. Sigurður Guðmundsson verkamaður, smiður á Skagaströnd, f. 29. maí 1900, d. 2. desember 1984.
8. Árný Guðmundsdóttir húsfreyja á Akureyri, f. 30. desember 1901, d. 27. febrúar 1988.
9. Anna Sigurlaug Guðmundsdóttir sjúklingur, f. 8. desember 1903, d. 3. ágúst 1963.
10. Guðmundur Guðmundsson málarameistari, f. 18. maí 1905, d. 14. september 1981.
11. Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 18. júlí 1906, d. 19. október 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.