Fjóla Guðbjörg Haraldsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Fjóla Guðbjörg Haraldsdóttir.

Fjóla Guðbjörg Haraldsdóttir frá Götu, húsfreyja, stjórnarráðsfulltrúi og ritari í Reykjavík fæddist 22. mars 1913 í Eyjum og lést 2. júní 2004.
Foreldrar hennar voru Haraldur Sigurðsson frá Butru í Fljótshlíð, kaupmaður, sjómaður, trésmiður, f. 18. október 1876 að Háamúla í Fljótshlíð, d. 18. september 1943, og bústýra hans Kristín Ingvarsdóttir frá Kalmanstjörn í Höfnum, húsfreyja, f. þar 27. júlí 1881, d. 22. ágúst 1952.

Börn Kristínar og Haraldar:
1. Ragna Haraldsdóttir húsfreyja í Eyjum og á Ísafirði, f. 24. september 1905 í Reykjavík, d. 11. maí 1966.
2. Kalman Steinberg Haraldsson járnsmiður í Reykjavík, f. 8. mars 1907, d. 24. nóvember 1975.
3. Hörður Trausti Haraldsson, f. 1908, d. 1909.
4. Guðmundur Trausti Haraldsson múrari í Reykjavík, f. 15. október 1909, d. 29. mars 1960.
5. Sigurður Ó. Haraldsson sjómaður, iðnverkamaður í Reykjavík, f. 10. ágúst 1911, d. 5. apríl 1992.
6. Fjóla Guðbjörg Haraldsdóttir stjórnarráðsfulltrúi og ritari í Reykjavík, f. 22. mars 1913 í Eyjum, d. 2. júní 2004.

Börn Haraldar og Guðnýjar Kristjönu Einarsdóttur:
7. Haraldur Ágúst Haraldsson járnsmiður, f. 27. október 1919, d. 16. október 1984.
8. Friðrik Haraldsson bakarameistari, f. 9. ágúst 1922, d. 21. mars 2014.
9. Rúrik Theodór Haraldsson leikari, f. 14. janúar 1926, d. 23. janúar 2003.
10. Ása Haraldsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 12. júlí 1928, d. 4. nóvember 2014.

Barn Haraldar og Ástríðar Hróbjartsdóttur:
11. Unnur Haraldsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. október 1904, d. 14. júlí 1991. Maður hennar Sigurbjörn Þorkelsson.

Börn Kristínar og fyrri manns hennar Jóns Antonssonar:
11. Kristín Jónsdóttir Ásgeirsson húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 24. ágúst 1901 í Reykjavík, d. 26. febrúar 1999. Hún var skráð vinnukona hjá móður sinni og Haraldi í Götu 1916, leigjandi, daglaunakona á Nönnugötu 5 í Reykjavík 1920. Vinnuveitandi Mr. Curry.
12. Ingvar Þorgils Jónsson Antonsson gullsmiður, fór til Vesturheims, f. 15. júlí 1903, d. 3. janúar 2004.

Fjóla var með foreldrum sínum í Götu 1913, (þá sögð fædd 21. mars 1912) til 1916.
Foreldrar hennar skildu 1917 og Kristín fluttist til Reykjavíkur með Kristínu og Fjólu, og þrír drengir fóru í Fljótshlíð, Kalman Steinberg fór að Ormskoti, Sigurður Ólafsson að Teigi, Guðmundur Trausti að Vatnsdal.
Hún var með móður sinni hjá Guðvaldi Jónssyni brunaverði á Laugavegi 75 í Reykjavík 1920, með henni á Lindargötu 14 1930 með Guðmundi Trausta og Kalmani Steinbergi.
Fjóla nam í Samvinnuskólanum, vann um skeið í Bókaverslun Eggerts Briem í Reykjavík.
Hún hóf störf hjá Tryggingastofnun Ríkisins 1960, var ritari tryggingayfirlæknis og vann síðan hjá Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu frá 1970, þar sem hún var fulltrúi og ritari til starfsloka vegna aldurs.
Þau Guðmundur giftu sig 1944, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu m.a í Sigtúni 35 og á Bergstaðastræti 14.
Guðmundur lést 1972 og Fjóla Guðbjörg 2004.

I. Maður Fjólu Guðbjargar, (29. janúar 1944), var Guðmundur Sigurðsson rithöfundur, ljóðskáld, fulltrúi, f. 27. febrúar 1912 í Skildinganesi við Skerjafjörð, d. 30. september 1972. Foreldrar hans voru Sigurður Helgason bóndi í Síðumúla og Hvammi í Hvítársíðu í Borgarfirði, f. 11. febrúar 1873, d. 26. júní 1938 og barnsmóðir hans Helga Jónsdóttir af Hurðarbaksætt í Reykholtsdal, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 2. ágúst 1886, d. 4. október 1961.
Börn þeirra:
1. Steinunn Björk Guðmundsdóttir ritari, f. 17. júní 1944, d. 11. janúar 2012. Maður hennar Fróði Jóhannsson.
2. Óttar Guðmundsson læknir, f. 29. apríl 1948. Sambýliskona Anna Jóna Gunnlaugsdóttir Briem. Barnsmóðir Guðbjörg Sigurðardóttir. Fyrsta kona Yvonne Irene Wessel. Önnur kona Ása Ólafsdóttir. Þriðja kona Kristjana Erna Einarsdóttir.

II. Sambýlismaður Fjólu var Þórður Jónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.