Eygló Einarsdóttir (Fífilgötu 2)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eygló Einarsdóttir, húsfreyja, starfsmaður Sjúkrahússins, fæddist 28. febrúar 1944.
Foreldrar hennar voru Einar Runólfsson, skipstjóri, f. 25. desember 1918, d. 10. mars 2019, og kona hans Vilborg Sigríður Einarsdóttir, húsfreyja, f. 21. nóvember 1921, d. 18. janúar 2005.

Börn Vilborgar og Einars:
1. Andvana drengur, f. 14. desember 1941 í Birtingarholti.
2. Atli Einarsson bankastarfsmaður, sjómaður, trésmiður, f. 21. janúar 1943 í Drífanda. Kona hans Rut Óskarsdóttir.
3. Eygló Einarsdóttir húsfreyja, starfsmaður Sjúkrahússins, f. 28. febrúar 1944 í Drífanda. Maður hennar Hreinn Smári Guðsteinsson.
4. Hlöðver Einarsson sjómaður, yfirvélstjóri, f. 11. nóvember 1945 á Velli, d. 25. desember 1986, fórst með Suðurlandinu. Kona hans Kristín Káradóttir.
5. Friðbjörg Einarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, vinnur hjá verkalýðssambandinu í Svíþjóð, f. 14. júní 1956. Maður hennar Magnús Geir Einarsson.

Eygló eignaðist barn með Vígsteini 1961.
Þau Hreinn Smári giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Barnsfaðir Eyglóar var Vígsteinn Vernharðsson, f. 10. júní 1943, d. 3. nóvember 2005.
Barn þeirra:
1. Anna Vígsteinsdóttir, f. 21. janúar 1961.

II. Maður Eyglóar er Hreinn Smári Guðsteinsson, vélstjóri, f. 12. desember 1939.
Börn þeirra:
2. Kolbrún Ýr Hreinsdóttir, f. 1. september 1963.
3. Hreinn Ómar Hreinsson, f. 8. nóvember 1973.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.