Emil Marteinn Andersen (yngri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Emil Marteinn Andersen, yngri, sjómaður fæddist 5. janúar 1976.
Foreldrar hans Jóel Þór Andersen, skipstjóri, f. 9. september 1950, og kona hans Þuríður Jónsdóttir, húsfreyja, afgreiðslumaður, f. 12. september 1952.

Börn Þuríðar og Jóels Þórs:
1. Þórdís Jóelsdóttir Andersen, f. 21. ágúst 1972.
2. Halldór Jón Andersen, f. 24. janúar 1974.
3. Emil Marteinn Andersen, f. 5. janúar 1976.

Þau Ingveldur giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Þau Soffía hófu sambúð, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Emil býr við Faxastíg 41.

I. Fyrrum kona Emils er Ingveldur Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 29. september 1982. Foreldrar hennar Magnús Kristleifur Magnússon, sjómaður, húsasmíðameistari, f. 27. desember 1957, og Sigríður Petra Hansen, húsfreyja, starfsmaður leikskóla, f. 20. maí 1959.
Börn þeirra:
1. Alexander Andersen, f. 8. febrúar 2000.
2. Andri Snær Andersen, f. 16. september 2004.
3. Jóel Þór Andersen, f. 25. febrúar 2009.

II. Fyrrum sambúðarkona Emils er Soffía Mary Másdóttir, húsfreyja, starfsmaður á elliheimili, f. 12. ágúst 1987. Foreldrar hennar Már Friðþjófsson, sjómaður, launafulltrúi, f. 14. september 1959, d. 25. desember 2022, og kona hans Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, f. 12. júní 1961.
Börn þeirra:
4. Elísabet Þurý Andersen, f. 10. nóvember 2013.
5. Sebastían Elí Andersen, f. 5. september 2017.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.