Elínborg Jónsdóttir (Árbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elínborg Jónsdóttir.

Elínborg Jónsdóttir húsfreyja, verkakona fæddist 9. nóvember 1950 á Hásteinsvegi 7 og lést 28. maí 2016. Foreldrar hennar voru Jón Tómas Markússon sjómaður, vélstjóri, f. 30. nóvember 1915 á Sæbóli í Aðalvík, N-Ís, d. 13. júní 1989, og kona hans Kjartanía Vilborg Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1922 á Bergstöðum, d. 16. september 2015.

Börn Kjartaníu og Jóns:
1. Vilhjálmur Már Jónsson kennari, skólastjóri, f. 16. apríl 1943 á Sæbergi. Kona hans var Jóna Ólafsdóttir.
2. Herborg Jónsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, sjúkrahússstarfsmaður, f. 4. desember 1944 á Sæbergi. Maður hennar, skildu, var Jóhannes Haraldsson.
3. Elínborg Jónsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 9. nóvember 1950 á Hásteinsvegi 7, d. 28. maí 2016. Maður hennar var Bragi Jónsson frá Ísafirði, f. 15. desember 1947, d. 28. maí 2003.
4. Tómas Kristján Jónsson sjómaður og beitningamaður í Grundarfirði, f. 10. janúar 1952 á Gunnarshólma. Ókv.
5. Hörður Jónsson útgerðarmaður í Grundarfirði, býr í Þýskalandi, f. 28. nóvember 1958. Kona hans er Arnhildur Þórhallsdóttir.
6. Viðar Jónsson sjómaður, starfsmaður ABC-barnahjálparinnar, f. 15. apríl 1960, d. 13. nóvember 2014. Kona hans Kristín Sóley Kristinsdóttir.

Elínborg var með foreldrum sínum í æsku, á Hásteinsvegi 7, á Gunnarshólma 1952, í Árbæ, Brekastíg 7 A 1960 og til Goss 1973.
Hún gekk í Húsmæðraskólann á Ísafirði.
Þau Bragi giftu sig, bjuggu fjögur ár fyrir vestan, síðan í Eyjum, eignuðust fjögur börn, en skildu 1984.
Þau bjuggu á Vestmannabraut 60.
Elínborg vann lengst í Vinnslustöð Vestmannaeyja, síðustu árin var hún yfirmatsmaður við saltfiskvinnslu. Hún bjó síðast á Hásteinsvegi 52.
Hún lést 2016.

I. Maður Elínborgar, (skildu), var Bragi Jónsson, f. 15. desember 1947 á Ísafirði, d. 28. maí 2003.
Börn þeirra:
1. Jón Kjartan Bragason, f. 15. maí 1969. Kona hans Linda M. Njarðardóttir
2. Hafþór Bragason, f. 19. september 1971. Sambýliskona Ásta Rögnvaldsdóttir.
3. Bjarki Bragason, f. 23. september 1975. Kona hans Ivona Bragason.
4. Sólrún Bragadóttir, f. 21. febrúar 1979. Óg.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.