Einar Einarsson (Berjanesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Einar Einarsson frá Hátúnum í Landbroti, V.-Skaft., bóndi, síðar í dvöl hjá Jóni og Ólöfu í Berjanesi fæddist 18. mars 1862 og lést 19. apríl 1942 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Einar Einarsson bóndi í Gamlabæ (Syðri-Steinsmýri) í Meðallandi, f. 18. nóvember 1831 á Geirlandi á Síðu, d. 31. júlí 1927 í Ásgarði í Landbroti, og kona hans Þóra Jónsdóttir frá Hátúnum, húsfreyja, f. þar 30. júní 1827, d. 18. ágúst 1889 í Hörglandskoti á Síðu.

Einar var með foreldrum sínum fyrstu ár sín.
Hann var ómagi á Hörgslandi 1873-1877, smali þar og síðan vinnumaður 1877-1893, vinnumaður í Ásgarði 1893-1895, bóndi í Fljótskróki í Meðallandi 1895-1902, húsmaður á Kársstöðum í Landbroti 1902-1905, bóndi á Fossi í Mýrdal 1905-1919. Hann var hjá syni sínum á Fossi 1919-1922.
Einar flutti ásamt konu sinni til Eyja 1922, dvaldi hjá Jóni og Ólöfu í Berjanesi til 1933, en flutti þá til Reykjavíkur og dvaldi hjá dóttur sinni þar til æviloka 1942.
Þau Þuríður giftu sig 1892, eignuðust sex börn.
Einar lést 1942 og Þuríður 1948.

I. Kona Einars, (20. júní 1892), var Þuríður Elíasdóttir húsfreyja, f. 3. september 1870 á Syðri-Steinsmýri, d. 10. febrúar 1948 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Elías Einarsson bóndi á Norður-Fossi í Mýrdal, f. 9. júní 1893, d. 23. janúar 1922. Kona hans Sigríður Vigfúsdóttir.
2. Gyðríður Einarsdóttir vinnukona, húsfreyja, f. 29. maí 1894, d. 27. september 1962. Maður hennar Páll Guðbrandsson.
3. Jón Einarsson verkamaður, smiður, f. 13. júní 1895, d. 27. nóvember 1989. Kona hans Ólöf Friðfinnsdóttir.
4. Þórarinn Einarsson, (Tóti í Berjanesi), sjómaður, verkamaður, f. 18. mars 1897, d. 28. september 1983.
5. Guðlaug Einarsdóttir húsfreyja, f. 20. maí 1901, d. 1. apríl 1934. Maður hennar, skildu, Árni Gíslason.
6. Halla Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. febrúar 1903, d. 11. janúar 1998. Barnsfaðir hennar Þórður Ingiberg Björnsson. Maður hennar Þorleifur Sigurbrandsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.