Edda Kristjánsdóttir (Brekastíg 21)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Edda Kristjánsdóttir verslunarmaður fæddist 13. febrúar 1939 í Sóleyjartungu við Brekastíg 21.
Foreldrar hennar voru Kristján Einarsson skipstjóri, f. 15. febrúar 1906, d. 7. október 1974, og kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. febrúar 1908, d. 9. mars 1997.

Börn Margrétar og Kristjáns:
1. Haukur Kristjánsson sjómaður, vélstjóri, bifreiðastjóri hjá Esso, f. 2. apríl 1930 á Vestmannabraut 72, d. 16. október 2015. Kona hans Ester Friðjónsdóttir.
2. Jóna Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 7. október 1931 á Heiðarbóli, d. 11. apríl 2019. Maður hennar Kári Birgir Sigurðsson.
3. Garðar Hafsteinn Kristjánsson, f. 18. október 1934 í Ási, d. 22. ágúst 1935.
4. Guðbjörg Kristjánsdóttir röntgenmyndari, f. 23. janúar 1936 í Ási, d. 15. janúar 2013. Maður hennar Jóhann Ingvar Guðmundsson.
5. Edda Kristjánsdóttir verslunarmaður, f. 13. febrúar 1939 í Sóleyjartungu. Barnsfaðir Reynir Oddsson. Fyrrum sambýlismaður Herbert Árnason.
6. Ester Kristjánsdóttir húsfreyja, starfsmaður Sjúkrahússins, skrifstofumaður, f. 3. maí 1944 í Sóleyjartungu. Maður hennar Sigurður Guðmundsson.

Edda eignaðist barn með Reyni Heiðari 1958.
Þau Herbert hófu sambúð, eignuðust eitt barn, bjuggu í Sóleyjartungu við Brekastíg 21. Þau skildu.

I. Barnsfaðir Eddu var Reynir Heiðar Oddsson, f. 12. ágúst 1936.
Barn þeirra var:
1. Fjóla Hauksdóttir, sem varð kjörbarn Hauks Kristjánssonar, f. 2. apríl 1930, d. 16. október 2015, og Esterar Friðjónsdóttur, f. 17. ágúst 1932, d. 4. ágúst 2005.

II. Fyrrum sambúðarmaður Eddu Herbert Árnason bifvélavirki, f. 6. apríl 1939. Foreldrar hans Árni Mathiesen Jónsson lögfræðingur, starfsmaður Reykjavíkurborgar, f. 9. október 1909, d. 25. desember 1990, og kona hans Hrefna Herbertsdóttir húsfreyja, f. 2. júní 1913, d. 21. júlí 1999.
Barn þeirra:
2. Birkir Herbertsson, f. 25. nóvember 1962.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.