Bryndís Guðjónsdóttir (Hvoli)
Bryndís Guðjónsdóttir, húsfreyja, aðstoðarleikskólakennari fæddist 4. júní 1960.
Foreldrar hennar Guðjón Kristinsson, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 29. nóvember 1917, d. 28. mars 1975, og kona hans Kristín Ólafsdóttir, húsfreyja, verkakona, f. 22. júlí 1925, d. 24. október 1992.
Bryndís eignaðist barn með Óskari Axel 1975.
Þau Böðvar Vignir giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Hólagötu 24.
I. Barnsfaðir Bryndísar er Óskar Axel Óskarsson, f. 8. nóvember 1960.
Barn þeirra:
1. Hrefna Óskarsdóttir, f. 28. apríl 1975.
II. Maður Bryndísar er Böðvar Vignir Bergþórsson, vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 23. maí 1958. Foreldrar hans Bergþór Reynir Böðvarsson, f. 15. maí 1934, d. 19. nóvember 2013, og Sigurlaug Vilmundardóttir, f. 1. júní 1935, d. 2. mars 2018.
Börn þeirra:
2. Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir, f. 15. ágúst 1980.
3. Bergþór Reynir Böðvarsson, f. 22. mars 1983.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bryndís.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.