Birgir Jóhannsson (rafvirkjameistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Birgir Jóhannsson.

Birgir Jóhannsson rafvirkjameistari fæddist 5. desember 1938 í Nýhöfn við Skólaveg 23.
Foreldrar hans voru Jóhann Sigfússon útgerðarmaður, forstjóri, skipasali, f. 25. nóvember 1905, d. 16. febrúar 1991, og kona hans Ólafía Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. maí 1907, d. 22. ágúst 1998.

Börn Ólafar og Jóhanns:
1. Sigríður Anna Lilja Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 7. september 1929 í Hofshreppi í Skagafirði, d. 14. september 2019. Maður hennar Pálmi S. Rögnvalsson.
2. Haukur Jóhannsson skipstjóri, f. 18. nóvember 1932, d. 18. febrúar 2021. Kona hans Emma Kristjánsdóttir.
3. Birgir Jóhannsson rafvirkjameistari, f. 5. desember 1938. Kona hans Kolbrún Stella Karlsdóttir.
4. Garðar Jóhannsson skrifstofumaður, f. 17. ágúst 1943. Kona hans Svanhvít Árnadóttir.

Birgir lærði rafvirkjun í Iðnskólanum í Eyjum og hjá Haraldi Eiríkssyni. Meistari var Lárus Guðmundsson, lauk sveinsprófi 1959 og fékk síðar meistararéttindi.
Hann vann hjá Haraldi og síðar hjá Einari Sigurðssyni. Eftir flutning til Reykjavíkur vann hann hjá Reykjafelli og starfar þar enn (2021).
Þau Kolbrún Stella giftu sig 1959, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu að Grænuhlíð 6 við Gosið 1973, búa nú á Orrahólum 7 í Reykjavík.

I. Kona Birgis, (24. október 1959), er Kolbrún Stella Karlsdóttir húsfreyja, f. 2. mars 1941.
Börn þeirra:
1. Esther Birgisdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1959. Maki hennar er Stefán Sigurþór Agnarsson, f. 1. maí 1955.
2. Karl Jóhann Birgisson trésmiður, sjómaður, f. 29. september 1960, d. 26. september 1992. Maki hans Sigríður Bjarnadóttir, f. 22. nóvember 1963.
3. Ólafía Birgisdóttir verslunarmaður, f. 26. janúar 1963. Maki hennar er Óskar Freyr Brynjarsson, f. 18. desember 1961.
4. Lilja Birgisdóttir bankastarfsmaður, f. 12. maí 1966. Maki var Marinó Traustason, f. 10. maí 1963, d. 20. janúar 2008. Sambúðarmaður hennar er Guðjón Grétarsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.