Jóhann Sigfússon (útgerðarmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Sigfússon útgerðarmaður, forstjóri, síðar skipasölumaður í Reykjavík fæddist 25. nóvember 1904 í Akrahreppi í Skagafirði og lést 16. febrúar 1991.
Foreldrar hans voru Sigfús Hansson bóndi, lengst í Gröf á Höfðaströnd, f. 23. júlí 1874 á Hellulandi í Skagafirði, d. 27. mars 1946 í Gröf, og kona hans Anna Jónína Jósafatsdóttir frá Auðnum í Glaumbæjarsókn í Skagafirði, f. 26. febrúar 1879, d. 12. apríl 1941.

Bróðir Jóhanns var
1. Sigurður Sigfússon, f. 7. ágúst 1918, d. 8. janúar 1997

Jóhann var með foreldrum sínum í æsku.
Hann sótti sjó á vertíðum í Eyjum, varð útgerðarmaður, einn af stofnendum Vinnslustöðvarinnar og fyrsti forstjóri hennar 1946. Hann sagði því embætti lausu 1959 og flutti til Reykjavíkur. Þar fékkst hann við skipasölu til 75 ára aldurs og rak frystihús í Hafnarfirði með Kjartani Friðbjarnarsyni.
Þau Ólafía kynntust, er hún var vinnukona í Bólstaðarhlíð um tvítugt.
Þau giftu sig 1929, eignuðust fjögur börn. Þau voru í fyrstu húsfólk í Gröf með fyrsta barn sitt.
Þau fluttu til Eyja 1930, eignuðust þar þrjú börn, bjuggu í Helli við Vestmannabraut 13B á því ári, í Nýhöfn við Skólaveg 23 1934 og 1940, á Lundi við Vesturveg 12 1945, í Sólhlíð 8 1949 og síðan meðan þau bjuggu í Eyjum.
Jóhann lést 1991 og Ólafía 1998.

I. Kona Jóhanns, (15. maí 1929), var Ólafía Sigurðardóttir frá Núpi u. Eyjafjöllum, húsfreyja f. 19. maí 1907, d. 22. ágúst 1998.
Börn þeirra:
1. Sigríður Anna Lilja Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 7. september 1929 í Hofshreppi í Skagafirði, d. 14. september 2019. Maður hennar Pálmi S. Rögnvaldsson.
2. Haukur Jóhannsson skipstjóri, f. 18. nóvember 1932, d. 18. febrúar 2021. Kona hans Emma Kristjánsdóttir.
3. Birgir Jóhannsson rafvirkjameistari, f. 5. desember 1938. Kona hans Kolbrún Stella Karlsdóttir.
4. Garðar Jóhannsson skrifstofumaður í Reykjavík, f. 17. ágúst 1943. Kona hans Svanhvít Árnadóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.