Berglind Erlingsdóttir
Berglind Erlingsdóttir húsfreyja, matartæknir, mannfræðingur, hjúkrunarnemi fæddist 15. desember 1974 í Eyjum.
Foreldrar hennar Erling Pétursson frá Karlsbergi við Heimagötu 22, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 25. október 1942 í Fagradal í Mýrdal og fyrri kona hans Jóhanna Guðrún Jónsdóttir frá Þorlaugargerði, húsfreyja, f. 20. desember 1942, d. 8. mars 2022.
Börn Jóhönnu Guðrúnar og Erlings:
1. Pétur Erlingsson sjómaður á Sauðárkróki, skipstjóri á Gullhólmi frá Grundarfirði, f. 17. nóvember 1961 í Reykjavík. Kona hans er Aðalbjörg Anna Gunnarsdóttir verslunarmaður, f. 19. júlí 1965.
2. Guðrún Erlingsdóttir húsfreyja, bæjarfulltrúi í Eyjum, verkalýðsleiðtogi, varaþingmaður, BA-atvinnulífsfræðingur, blaðamaður, f. 18. október 1962 í Eyjum. Maður hennar er Gylfi Sigurðsson húsasmíðameistari, f. 26. janúar 1959.
3. Erling Erlingsson framreiðslumaður, sjómaður í Reykjavík, skipstjóri á Steinunni frá Höfn, f. 25. október 1965 í Eyjum. Kona hans er Arnheiður Edda Rafnsdóttir bankastarfsmaður, f. 9. maí 1965.
4. Berglind Erlingsdóttir húsfreyja, matartæknir, mannfræðingur, hjúkrunarnemi, f. 15. desember 1974 í Eyjum, var búsett í Portland í Oregon í Bandaríkjunum, nú í Hafnarfirði. Maður hennar er dr. Styrmir Sigurjónsson verkfræðingur, f. 14. apríl 1974. Hann vinnur við líftækni. Hann er sonarsonur Jóhönnu Sigurjónsdóttur Sigurðssonar frá Þingeyri.
Barn Erlings er
5. Víkingur Freyr Erlingsson rafvirkjanemi á Selfossi, f. 20. ágúst 1996.
Þau Styrmir giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Bandaríkjunum, en síðan í Hfirði og Rvk.
I. Maður Berglindar er dr. Styrmir Sigurjónsson verkfræðingur, vinnur við líftækni, f. 14. apríl 1974. Foreldrar hans Sigurjón Sigurðsson, f. 20. maí 1949, og Guðrún Gunnarsdóttir, f. 29. nóvember 1949.
Börn þeirra:
1. Daníel Andri Styrmisson, f. 23. janúar 2004.
2. Askur Lilja Styrmis, f. 26. mars 2007.
3. Salka Kristín Styrmisdóttir, f. 25. september 2008.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Jóhönnu Guðrúnar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.