Adolf Adolfsson
Adolf Adolfsson pípulagningamaður, innkaupastjóri fæddist 17. september 1962.
Foreldrar hans voru Adolf Óskarsson frá Hólnum við Landagötu 18, pípulagningameistari, f. 30. nóvember 1928, d. 15. desember 2008, og kona hans Ásta Vigfúsdóttir frá Bakkastíg 3, (Fúsahúsi), húsfreyja, f. 15. júlí 1928, d. 20. febrúar 2014.
Börn Ástu og Adolfs:
1. Hörður Adolfsson matreiðslumeistari, f. 28. mars 1950, d. 6. október 2020. Kona hans Nanna María Guðmundsdóttir.
2. Erla Adolfsdóttir, f. 25. júní 1952. Maður hennar Jóhann Pétur Andersen .
3. Vigfús Adolfsson, f. 18. ágúst 1955, d. 21. júlí 1967.
4. Hilmar Adolfsson pípulagningameistari, f. 21. janúar 1960. Kona hans Ólöf Sveinbjörg Sigurðardóttir.
5. Adolf Adolfsson, f. 17. september 1962. Kona hans Júlía Henningsdóttir.
Þau Júlía giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Hfirði.
I. Kona Adolfs er Jóna Júlía Henningsdóttir, f. 20. júlí 1963. Foreldrar hennar Henning Þorvaldsson, f. 26. apríl 1943, d. 24. september 2006, og Jónína Steinunn Alfreðsdóttir, f. 1. apríl 1945.
Börn þeirra:
1. Henný Jóna Adolfsdóttir, f. 15. júní 1983.
2. Vigfús Adolfsson, f. 28. febrúar 1985.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið. Minning Hennings.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.