Þuríður Sigurðardóttir (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þuríður Sigurðardóttir frá Steinsstöðum fæddist þar 13. september 1875, d. 28. ágúst 1959.
Foreldrar hennar voru Sigurður Árnason bóndi á Steinsstöðum, f. 1844, hrapaði til bana 4. ágúst 1880, og kona hans Margrét Sæmundsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1835, d. 12. mars 1880.

Bróðir Þuríðar var Árni Sigurðsson, f. 24. nóvember 1871.

Þuríður var með foreldrum sínum til 1880, er þau létust bæði á sama árinu.
Margrét móðir hennar lést 1880 úr „kvefsótt“ 4 dögum eftir fæðingu Jóns, sem lést 17. mars, og Sigurður faðir hennar hrapaði til bana 4. ágúst.
Árni sonur þeirra var tekinn í fóstur af Finni Árnasyni og Þuríði Jónsdóttur á Steinsstöðum og Þuríður fór í fóstur á því ári að Stóra-Gerði til Sigríðar Jónsdóttur og Bjarna Bjarnasonar.
Hún fór með þeim til Utah 1883.

I. Maður Þuríðar, (19. desember 1906), var Joseph Larson í Spanish Fork, af sænskum ættum, f. um 1874, d. 1. október 1938.
Börn þeirra:
1. Burgess Larson, f. um 1908, bjó í Spanish Fork.
2. Merrild Larson, f. um 1910, bjó í Mt. Plesant.
3. Leona Simmons, f. um 1910, bjó í Las Vegas.
4. Melba Larson, f. um 1915, bjó í Spanis Fork.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.